Glamour

Keeping up with the Kardashians í tímabundna pásu

Ritstjórn skrifar
Fjölskylda Kim er skiljanlega í miklu áfalli.
Fjölskylda Kim er skiljanlega í miklu áfalli. Vísir/Getty
Raunveruleikaþættirnir Keeping up with the Kardashians, sem fylgja Kim Kardashian og fjölskyldu hennar um sitt daglega líf, hafa verið settir í tímabundna pásu. Þættirnir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni E! og eru nú þegar komnar 12 seríur. 

Ástæðan er atburðir vikunnar. Aðfaranótt mánudagsins var Kim rænd á hótelinu sínu í París. Á hana var miðuð byssa og hún var bundin og læst inni á baðherberginu á meðan ræningjarnir stálu skartgripum sem voru margra milljóna dollara virði.

Augljóslega er Kim og öll fjölskyldan í áfalli og því vel skiljanlegt afhverju framsleiðslu á þáttunum er sett á pásu. 






×