Bíó og sjónvarp

Keep Frozen hlaut Einarinn

Nanna Elísa Jakobsdóttr skrifar
Hér má sjá sigurvegarana ásamt tökumanninum Dennis Helm.
Hér má sjá sigurvegarana ásamt tökumanninum Dennis Helm.
„Keep Frozen“ eftir Huldu Rós Guðnadóttur og í framleiðslu Helgu Rakelar Rafnsdóttur hlaut Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar. Þetta kemur fram á Klapptré.

Hulda og Helga hafa áður hlotið þessi verðlaun en þær unnu einnig fyrir myndina Kjötborg árið 2008. „Keep frozen“ fjallar um frystitogara.

„Á kaldri vetrarnóttu siglir drekkhlaðinn frystitogari inn í gömlu höfnina í Reykjavík. Í frystilestinni eru 20.000 fiskikassar, hitastigið er -35 C. Hópur manna hefur tvo sólarhringa til að tæma skipið.  Á meðan við fylgjumst með þeim framkvæma hið ómögulega heyrum við sögur af karlmennsku og rómantík, gamni og dauðans alvöru.“ Með þessum hætti er myndinni lýst á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands

Skjaldborg er hátíð íslenskra heimildarmynda og var haldin í tíunda sinn í ár. Hún er haldin á Patreksfirði og fór fram dagana 13. – 16. maí. „Keep Frozen“ verður sýnd í Bíó Paradís frá og með morgundeginum í að minnsta kosti tvær vikur.

„Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildamyndir er hátíðinni ætlað að vera tækifæri fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildamyndir til að koma saman. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildamyndin á Skjaldborg 2016 valin af áhorfendum. Skjaldborg sýnir heimildamyndir sem annars kæmu varla fyrir augu almennings og ber jafna virðingu fyrir hinu smáa, stóra, skrýtna og fokdýra. Á dagskrá hátíðarinnar hafa verið bæði örstuttar myndir og í fullri lengd og efnistökin fjölbreytt.“ 

KEEP FROZEN Í Bío Paradís from Hulda Ros Gudnadottir on Vimeo.


Tengdar fréttir

Skjaldborg tíunda árið í röð

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda – verður haldin um hvítasunnuhelgina, 13. – 16. maí í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×