Golf

Kaymer missti frá sér sigurinn í Abu Dhabi á ævintýralegan hátt

Pútterinn var sjóðandi heitur hjá Gary Stal í dag.
Pútterinn var sjóðandi heitur hjá Gary Stal í dag. Getty
Martin Kaymer á eflaust ekki eftir að gleyma lokahringnum á HSBC meistaramótinu í Abu Dhabi í bráð en þessi reynslumikli kylfingur, sem sigrað hefur í 22 atvinnumannamótum á ferlinum, lét pressuna ná til sín og glataði niður tíu högga forystu.

Kaymer hafði sex högga forskot fyrir lokahringinn og í byrjun leit ekkert út fyrir að hann ætlaði að glata því niður eftir þrjá fugla á fyrstu fjórum holunum.

Eftir það lá samt allt niður á við hjá Þjóðverjanum sem fékk einn skolla, einn tvöfaldan skolla og einn þrefaldan en Gary Stal, ungur franskur kylfingur sem spilað hefur á Evrópumótaröðinni í tvö ár, nýtti sér það til fulls.

Stal lék lokahringinn á 65 höggum eða sjö undir pari og endaði á 19 höggum undir samtals en hann skaut sér upp fyrir Kaymer sem endaði einn í þriðja sæti á 17 höggum undir.

Rory McIlroy var einnig meðal þátttakenda og gerði hann líka atlögu að Kaymer á lokahringnum en hann endaði einn í öðru sæti á 18 höggum undir pari, einu á eftir Stal.

Á Hawaii er einnig leikið á PGA mótaröðinni þessa helgi en fyrir lokahringinn Sony Open sem fram fer í kvöld leiðir Jimmy Walker með tveimur höggum á Ryder-liðsfélaga sinn Matt Kuchar.

Sýnt verður beint frá lokahringnum á Golfstöðinni og hefst útsending á miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×