Golf

Kaymer í forystu í Abu Dhabi en McIlroy ekki langt undan

Kári Örn Hinriksson skrifar
Martin Kaymer hefur keppnistímabiliið af krafti.
Martin Kaymer hefur keppnistímabiliið af krafti. AP
Rory McIlroy hefur keppnistímabilið mjög vel en eftir tvo hringi á HSBC meistaramótinu í Abu Dhabi er þessi besti kylfingur heims í þriðja sæti á 11 höggum undir pari. Þá á McIlroy ekki eftir að gleyma upphafshöggi sínu á 15. holu á öðrum hring í dag en hann fór holu í höggi í fyrsta sinn á ferlinum í atvinnumannamóti.

McIlroy er ekki sá eini sem hefur farið holu í höggi í Abu Dhabi en Spánverjinn vinsæli, Miguel Angel Jimenez, gerði slíkt hið sama í gær og fagnaði á sinn einstaka hátt.

Það er hins vegar Þjóðverjinn Martin Kaymer sem leiðir mótið en hann hefur leikið frábært golf og er á 13 höggum undir pari eftir hringina tvo. Í öðru sæti kemur belgíski kylfingurinn Thomas Pieters á 12 undir pari en hann er af mörgum talinn vera einn af efnilegustu kylfingum Evrópumótaraðarinnar.

Á PGA-mótaröðinni fer Sony Open fram á Hawaii en Webb Simpson og Paul Casey léku fyrsta hring á 62 höggum og deila þeir forystunni á átta höggum undir pari. Jason Day, Matt Kuchar og Camilo Villegas léku einnig vel á fyrsta hring og eru á meðal efstu manna en margir af sterkustu kylfingum PGA-mótaraðarinnar hefja keppnistímabil sitt um helgina.

Bæði HSBC meistaramótið og Sony Open eru í beinni útsendingu á Golfstöðinni en útsendingartíma má nálgast hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×