Körfubolti

Kawhi Leonard óstöðvandi í Cleveland | Myndbönd

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Meistararnir réðu ekkert við Kawhi Leonard.
Meistararnir réðu ekkert við Kawhi Leonard. vísir/getty
Leiknir voru 11 leikir í NBA-deildinni í körfubolta í Bandaríkjunum í nótt. San Antonio Spurs sótti sigur eftir framlengingu til Cleveland í stórleik næturinnar.

Kawhi Leonard fór á kostum í liði Spurs í nótt. Hann skoraði 41 stig sem er það mesta sem hann hefur gert á ferlinum. Hann skoraði 6 stig í framlengingunni og þar á meðal tróð hann boltanum í körfuna þegar 4,9 sekúndur voru eftir af leiknum og tryggði Spurs sigurinn.



Leonard hefur skorað yfir 30 stig í sex leikjum í röð. Það hefur enginn leikmaður Spurs afrekað síðan Mike Mitchell gerði það árið 1986.

LaMarcus Aldridge skoraði 16 stig og tók 12 fráköst fyrir Spurs. LeBron James og Kyrie Irving skoruðu 29 stig hvor fyrir meistara Cleveland Cavaliers.



Marcus Morris tryggði Detroit Pistons 113-112 sigur á Washington Wizards með ótrúlegri sigurkörfu á síðasta andartaki leiksins. Körfuna má sjá hér að neðan.



Morris skoraði 25 stig fyrir Pistons og Reggie Jackson 19. Markeieff Morris, tvíburabróðir Marcus, skoraði 19 stig fyrir Wizards líkt og John Wall.

Portland Trail Blazers lagði Boston Celtics 127-123 í framlengdum leik. C. J. McCollum skoraði 35 stig fyrir Trail Blazers og Damian Lillard 28 stig. Isaiah Thomas fór mikinn fyrir Celtics og skoraði 41 stig. Einvígi McCollum og Thomas má sjá hér að neðan.



Devin Booker tryggði Phoenix Suns með sigurkörfu sem sjá má hér að neðan. Booker sem er aðeins á öðru ári sínu í deildinni skoraði 26 stig en hann hitti úr þremur af fjórum þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Eric Bledsoe skoraði 23 stig fyrir Suns.



Carmelo Anthony skoraði 31 stig fyrir Knicks og Derrick Rose 26.



Öll úrslit næturinnar:

Cleveland Cavaliers – San Antonio Spurs 115-118

Detroit Pistons – Washington Wizards 113-112

Boston Celtics – Portland Trail Blazers 123-127

Charlotte Hornets – Brooklyn Nets 112-105

Atlanta Hawks – Philadelphia 76ers 110-93

New York Knicks – Phoenix Suns 105-107

Miami Heat – Milwaukee Bucks 109-97

Memphis Grizzlies – Houston Rockets 95-119

Denver Nuggets – Los Angeles Clippers 123-98

Utah Jazz – Indiana Pacers 109-100

Chicago Bulls – Sacramento Kings 102-99

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×