Sport

Kavanagh: Hef alltaf sagt að Gunnar er næsta stjarna veltivigtarinnar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson er búinn að vinna tvo bardaga í röð í UFC.
Gunnar Nelson er búinn að vinna tvo bardaga í röð í UFC. mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
Írski bardagaíþróttaþjálfarinn John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson og Conors McGregors, er meira en sáttur með frammistöðu Gunnars í búrinu á móti Bandaríkjamanninum Alan Jouban síðastliðið laugardagskvöld.

Gunnar pakkaði Jouban saman og kláraði hann með hengingartaki eftir 47 sekúndur í annarri lotu. Hengingunni náði hann eftir að slökkva ljósin hjá Jouban með fallegu höggi og fylgja því eftir með sparki í andlitið.

„Gæðin sem ég sá hjá Gunnari á laugardaginn eru þau sömu og ég hef séð frá byrjun,“ segir Kavanagh í viðtali við The Mirror á Írlandi.

John Kavanagh fylgist með Gunnari berja á Jouban í London á laugardaginn.mynd/mjölnir/sóllilja baltasarsdóttir
Kavanagh hefur ávallt haft tröllatrú á Gunnari og lýst því yfir nokkrum sinnum að hann verði heimsmeistari í veltivigt UFC. Hann sagði í viðtali við Fréttablaðið í síðustu viku að hann búist við því að Gunnar fái titilbardaga í lok þessa árs.

„Ég hef alltaf sagt að Gunnar er næsta stjarna veltivigtarinnar. Við höfum hrasað tvisvar sinnum en lært mikið á leiðinni,“ segir Kavanagh og vísar til tapanna á móti Rick Story og Demian Maia.

„Við lærðum mikið af tapinu á móti Story og enn þá meira af tapinu gegn Maia.“

„Í síðustu tveimur bardögum hefur Gunnar sýnt hvert hann getur komist. Hann er búinn að bæta þolið svakalega og að berjast standandi. Hann útboxaði Albert Tumenov sem er boxari og hann var líka betri standandi en Jouban en það er styrkleiki hans. Síðan er Gunnar augljóslega frábær í gólfinu,“ segir John Kavanagh.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×