Sport

Kaus Brady í alvöru Trump?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tom Brady á fegurðarsamkeppni með vini sínum, Donald Trump.
Tom Brady á fegurðarsamkeppni með vini sínum, Donald Trump. vísir/getty
Forsetaframbjóðandinn Donald Trump sagði í útvarpsviðtali í gær að NFL-stjarnan Tom Brady hefði hringt í sig og tjáð sér að hann væri búinn að merkja X við Trump í forsetakosningunum vestra.

Svo virðist vera sem Trump sé ekki alveg að segja satt þarna því Brady sagði í dag að hann væri alls ekkert búinn að kjósa í forsetakosningunum.

Vinskapur hefur verið á milli Brady og Trump í áraraðir en Brady sagðist ekki vilja blanda sér í pólitíkina. Hefur ekki svarað neinum spurningum um forsetakosningarnar.

Eiginkona Brady, Gisele Bundchen, sagði svo á Instagram að hún ætlaði sér ekki að kjósa Trump.

Brady-fjölskyldan virðist því hafa snúið bakið við Trump en hvort bandaríska þjóðin hefur líka gert það kemur í ljós í nótt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×