Viðskipti innlent

Kaupþing selur eign!

Stjórnarmaðurinn skrifar
Kaupþing seldi nú á dögunum hlut sinn í tapasveitingahúsakeðjunni La Tasca á ríflega 5 milljarða króna.

Í tilkynningu frá Kaupþingi var tekið fram að mikill viðsnúningur hefði orðið á rekstri La Tasca. EBIDTA síðasta rekstrarárs hefði verið 90% meiri en árið áður og að sú ákvörðun Kaupþings að fjárfesta frekar í félaginu hefði reynst hin skynsamlegasta.

Allt gott og vel, og stjórnarmaðurinn myndi óska Kaupþingsmönnum til hamingju, ef þeir væru ekki búnir að því sjálfir í tilkynningunni sem var svo full af sjálfshóli.

Á þeim sjö árum sem liðin eru frá hruni hafa Kaupþingsmenn staðið í rekstri barnaheimila, rekið bari og veitingahús og reynt fyrir sér í tískugeiranum.  Salan á La Tasca markar þó nokkur tímamót í rekstri á eignasafni Kaupþings en bankinn hafði ekki selt eign sem neinu nemur síðan árið 2011 að bankinn losaði sig við eignarhlut sinn í tískuvörukeðjunni All Saints.

Ljóst er að nokkur bið verður á því að Kaupþing selji þær eignir sem eftir eru ef alltaf á að bíða eftir viðsnúningi í rekstrinum.

Þannig má velta því fyrir sér hvort ekki sé fullreynt með hæfileika Kaupþingsfólks til að reka tískukeðjur á borð við Karen Millen, Warehouse og Coast?

Verðbólguboltinn blæs út

Þegar þessi orð eru rituð situr stjórnarmaðurinn á kaffihúsi með annað augað á símanum. Ástæðan er ekki sú að stjórnarmaðurinn eigi von á mikilvægu símtali, heldur bíður hann tíðinda úr heimi fótboltans þar sem síðasti dagur félagsskiptagluggans stendur yfir.

Knattspyrna er sennilega sturlaðasta form viðskipta sem fyrirfinnst á byggðu bóli. Hvar annarsstaðar þætti það annars eðlilegt viðmið að eyða áttatíu prósent tekna fyrirtækis í laun starfsmanna (leikmanna)?

Enska úrvalsdeildin er í sérflokki hvað eyðsluna varðar, enda sitja félögin í deildinni á 5,3 milljarða punda sjónvarpssamningi sem tilkynntur var í byrjun árs.

Óhætt er að segja að þessi innspýting hafi haft verðbólgu í för með sér. Manchester United var rétt í þessu að kaupa ungling sem fáir hafa heyrt um á 36 milljónir punda! Grannar þeirra í City gefa þeim svo lítið eftir, og hafa splæst í tvo nýja vængmenn á samanlagðar 100 milljónir punda (20 milljarða króna).

Meira að segja hinn sparsami Mike Ahsley í Newcastle virðist hafa tekið sóttina, og hefur keypt leikmenn fyrir réttar 50 milljónir punda.

Þá er nú fokið í flest skjól.

Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×