Viðskipti innlent

Kaupþing búið að slíta viðræðunum: Samræður við lífeyrissjóði búnar í bili

Sæunn Gísladóttir skrifar
Þórarinn V. Þórarinsson, hæstaréttarlögmaður, leiddi samningahópinn fyrir hönd lífeyrissjóðanna.
Þórarinn V. Þórarinsson, hæstaréttarlögmaður, leiddi samningahópinn fyrir hönd lífeyrissjóðanna. vísir/eyþór
Ljóst er að íslensku lífeyrissjóðirnir muni ekki kaupa hlut í Arion banka sem stendur en Kaupþing hefur slitið öllum samningaviðræðum. Þetta staðfestir Þórarinn V. Þórarinsson, hæstaréttarlögmaður, sem leiddi samningahópinn fyrir hönd lífeyrissjóðanna. Hann segir að hópnum hafi verið tilkynnt um þetta í dag.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í morgun var hluturinn sem vogunarsjóðirnir keyptu stærri en áður hafði verið rætt um. Þórarinn sagði að þau kaup sem þar raungerðust höfðu orðið umfangsmeiri en lífeyrissjóðunum hafði áður verið kynnt og voru af þeim sökum nokkurt undrunarefni. 

„Það hefur verið frá upphafi vitað og út frá því gengið að eigendur Kaupþings myndu kaupa hlut. Lengst af hefur verið talað um að sá hluti verði af stærðargráðunni 20 til 25 prósent. Þannig að umfangið kom okkur á óvart. Sérstaklega að það væri með þeim hætti að það gæti verið kaupréttur,“ sagði Þórarinn.

Hann segist ekki vita hver áform eru um eftirstandandi hlutinn. „Við höfum ekki hugmynd um það hvernig eða hverjum þeir ætli að selja í þessum banka,“ segir Þórarinn.

Þórarinn segist ekki vita hvort lífeyrissjóðirnir hyggist kaupa hlut í Arion banka í gegnum útboð ef af því verður. „Lífeyrissjóðirnir hafa varið miklum tíma og töluverðum kostnaði í að undirbúa þessi kaup. Stjórnir þeirra hafa kynnt sér út í hörku þau samningsdrög sem lögðu fyrir. Ég geri ráð fyrir að sjóðirnir muni eitthvað horfa til þess hvað sá samningur hafi hljóðað sem var boðinn og hvað verði boðið til sölu þegar þetta verður gert og bera það svolítið saman."

Hann segir samræður búnar í bili.


Tengdar fréttir

Kvöldfréttir Stöðvar 2: Tekist á um söluna á Arion í beinni

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins, og Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræða söluna á Arion banka í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld í beinni útsendingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×