Innlent

Kaupandi boðar málaferli gegn ríkinu vegna jarðarinnar Fells við Jökulsárlón

Sveinn Arnarsson skrifar
Umhverfisráðherra vonar að Jökulsárlón verði allt innan þjóðgarðs Vatnajökuls.
Umhverfisráðherra vonar að Jökulsárlón verði allt innan þjóðgarðs Vatnajökuls. vísir/valli
Sýslumannsembættið á Suðurlandi segir ríkissjóð vera réttmætan eiganda Fells við Jökulsárlón og verður gengið frá afsali til ríkissjóðs á næstu dögum. Embættið telur yfirlýsingu ríkissjóðs hafa komið innan lögbundins frests. Stjórnarformaður Fögrusala ehf. segist ætla með málið fyrir dómstóla.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að frestur ríkisins til að ganga inn í kauptilboð Fögrusala ehf., á jörðinni Felli í Suðursveit, hafi verið liðinn þegar ríkið gaf út tilkynningu um að það hygðist nýta forkaupsrétt sinn. Sýslumaðurinn á Suðurlandi, Anna Birna Þráinsdóttir, sagði málið í vinnslu innan embættisins.

Gísli Hjálmtýsson
Álit sýslumannsins á Suðurlandi er að ekki sé rétt að miða frest ríkisins við þann dag þegar tilboði Fögrusala var tekið þann 4. nóvember heldur ætti að miða frest ríkisins við 11. nóvember, viku seinna, því þá var gengið frá samningi við fyrirtækið. Þess vegna hafi frestur ríkisins verið til 11. janúar.

Þessa túlkun gagnrýnir Gísli Hjálmtýsson, stjórnarformaður Fögrusala ehf., en í lögum um náttúruvernd er skýrt kveðið á um að ríkið hafi sextíu daga til að nýta forkaupsrétt á jörðum á náttúruminjaskrá frá þeim degi þegar tilboði er tekið. „Við unum að sjálfsögðu ekki þessu áliti sýslumannsins á Suðurlandi og munum leita réttar okkar fyrir dómi,“ sagði Gísli.

Helga Árnadóttir
„Í mörg ár hefur verið beðið eftir uppbyggingu á svæðinu sem enn mun tefjast á meðan málið er fyrir dómstólum. Við ætluðum okkur stóra hluti en þurfum að bíða enn um sinn,“ bætir Gísli við.

Jökulsárlón er ein helsta náttúruperla Íslands og einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum. Ört stækkandi ferðaþjónusta kallar á frekari uppbyggingu á landinu öllu og þá einna helst á helstu viðkomustöðum ferðamanna á ferð sinni um landið.

„Við höfum lengi beðið eftir uppbyggingu við Jökulsárlón sem er löngu orðin brýn. Mikill fjöldi ferðamanna sækir Jökulsárlón heim á hverjum degi og því mikilvægt að hafist verði handa sem fyrst við uppbyggingu,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. „Ef rétt reynist að uppbygging frestist um lengri tíma er það auðvitað slæmt fyrir ferðaþjónustuna í heild sinni.“

Fjármálaráðuneyti, umhverfisráðuneyti og forsætisráðuneyti munu nú skoða málið í framhaldi af áliti sýslumanns á Suðurlandi og fara yfir það hvernig jörðinni verður stýrt. Ekki hefur enn verið ákveðið hjá hinu opinbera hvernig eigi að ráðstafa jörðinni eða hvernig eigi að nýta hana. Kaupverðið var 1.520 milljónir króna.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Jörðin Fell úr greipum ríkisins vegna klúðurs hjá sýslumanni

Fjármálaráðuneytið hafði sextíu daga til að ákveða hvort forkaupsréttur ríkisins á Felli í Suðursveit yrði nýttur. Sýslumaðurinn á Selfossi taldi dagana ekki rétt þannig að fresturinn var runninn út loksins þegar ráðuneytið afr

Ætla ekki að una niðurstöðu um að ríkið eignist Fell

Sýslumannsembættið á Suðurlandi ætlar á næstu dögum að ganga frá kaupum ríkisins á jörðinni Felli í Suðursveit, sem nær yfir stóran hluta Jökulsárlóns. Hluthafar í félagi sem áður hafði fengið samþykkt tilboð í jörðina, segja tilboð ríkisins aftur á móti vera ólöglegt þar sem það hafi borist of seint. Farið verður með málið fyrir dómstóla.

Sýslumaður segir ríkið eiga Fell

Anna Birna Þráinsdóttir segir ríkið vera réttmætan eiganda Fells í Suðursveit. Fresturinn hafi ekki verið liðinn. Telur starfsmann sinn ekki hafa aðhafst rangt í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×