Kaupa rekstur Keiluhallarinnar í Egilshöll Atli ísleifsson skrifar 28. febrúar 2015 13:12 Rúnar Bridde, verkefnastjóri hjá Reginn, Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson. Á myndina vantar Jóhannes Stefánsson í Múlakaffi.
Simmi og Jói og fjölskyldan í Múlakaffi hafa keypt rekstur Keiluhallarinnar í Egilshöll. „Jói, nafni minn í Múlakaffi, vakti athygli okkar á þessu tækifæri fyrir nokkru síðan og í kjölfarið ákváðum við að taka höndum saman. Við hlökkum mikið til samstarfsins við Jóa, hann er reynslubolti og alveg sérdeilis skemmtilegur náungi.“, segir Jóhannes Ásbjörnsson, sölu- og markaðsstjóri Hamborgarafabrikkunnar. Í tilkynningu segir að fjölskyldan í Múlakaffi hafi í gegnum árin byggt upp umsvifamikið fyrirtæki og sinni veitingarekstri í Múlakaffi og víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. “Simmi og Jói hafa mikla reynslu af því að skapa fjölskylduvæna stemningu og upplifun í sínum rekstri. Það er nákvæmlega það sem Keiluhöllin stendur fyrir. Þess vegna lá beinast við að fá þá til að taka með okkur í þetta verkefni.”, segir Jóhannes Stefánsson í Múlakaffi.Kveðja keiluna stoltÍ tilkynningunni segir að Rúnar Fjeldsted og eiginkona hans, Björk Sigurðardóttir, ætli að einbeita sér að fasteignaþróunarverkefnum í Öskjuhlíð og líta glöð yfir farinn veg. „Keiluárin okkar hafa verið frábær en nú er komið að tímamótum. Það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að Keiluhöllin í Öskjuhlíð myndi loka þar sem að við erum með ákveðið fasteignaþróunarverkefni í undirbúningi þar. Því er ánægjulegt að svo öflugur hópur sé að taka við kyndlinum í Egilshöllinni”, segir Rúnar Fjeldsted. Þá segir aðí Keiluhöllinni í Egilshöll sé öll aðstaða og búnaður í heimsklassa og að að hafi veitingaaðstaðan fengið alþjóðleg verðlaun árið 2013. “Við erum að taka við virkilega fallegri Keiluhöll af Rúnari og Björk og Egilshöllin er fyrir löngu búin að sanna sig sem ein stærsta íþrótta- og afþreyingarmiðstöð Íslands. Okkar markmið er að auka veg og vanda Keiluíþróttarinnar ásamt því að auka þjónustu við einstaklinga, hópa og fjölskyldur í leit að afþreyingu og góðum mat. Sem stendur er veitingastaður rekinn við hlið Keiluhallarinnar, sem og frábær sportbar. Við höldum þeim rekstri áfram fyrst um sinn, en kynnum svo til sögunnar nýjan veitingastað með haustinu”, segir Sigmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Keiluhallarinnar. Egilshöllin í Grafarvogi er stærsta afþreyingar- og íþróttamiðstöð á Íslandi eða um 31.000 fermetrar. Katrín B. Sverrisdóttir, framkvæmdarstjóri Egilshallarinnar segir yfir þrjú þúsund manns sækja í þá þjónustu sem er til staðar í Egilshöll á hverjum degi en gestafjöldi hefur tvöfaldast frá árinu 2010. „Nú þegar er þarna staðsett eitt vinsælasta bíóhús landsins, líkamsræktarstöð, skautasvell auk góðrar íþróttaaðstöðu fyrir ungmenni og aðra hópa. Uppbygging starfsseminnar í Egilshöllinni hefur því gengið gríðarlega vel, og t.a.m. er verið að byggja nýtt fimleikahús sem verður yfir 2.000 m2 til viðbótar við þá aðstöðu sem er fyrir. Við hlökkum til að fá nýja eigendur inn í Keiluhöllina í Egilshöll og teljum að þeirra aðkoma að húsinu muni styrkja enn frekar sterka starfsemi okkar. Það er mikill fengur að fá fjölskylduna í Múlakaffi að þessum rekstri enda reynslumikið fólk þar á ferðinni. Sömuleiðis er alltaf líf og fjör í kringum Simma og Jóa og við teljum að það verði engin breyting á því í þessu verkefni, enda er Keiluhöllin í Egilshöll gríðarlega vinsæl fyrir fjölskyldufólk og vinahópa sem koma alls staðar frá.“
Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Öfund í vinnu og afbrýðisamir vinnufélagar Atvinnulíf Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira