Viðskipti erlent

Kaup AT&T á Time Warner staðfest

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/EPA
Fjarskiptafyrirtækið AT&T ætlar að kaupa Time Warner á 84,5 milljarða dala eða tæplega tíu þúsund milljarða króna. Kaupsamningurinn var samþykktur í gærkvöldi og er þetta stærsti kaupsamningur ársins. Með kaupunum mun AT&T fá fjölda sjónvarpsstöðva eins og HBO og CNN, kvikmyndaver TW og margt fleira.

Fjarskiptafyrirtæki hafa á undanförnum árum snúið sér að því að sjá bæði um dreifingu efnis á netinu og framleiðslu þess. Samkeppnisyfirvöld Bandaríkjanna eiga þó eftir að samþykkja samrunann.

Samkvæmt Reuters fréttaveitunni hafa þingmenn í Bandaríkjunum áhyggjur af stærð fjölmiðlarisa og þá sérstaklega eftir að Comcast keypti NBC Universal árið 2013.

„Samruni af þessari stærðargráðu kallar á umfangsmikið mat og skoðun,“ segir öldungaþingmaðurinn Richard Blumenthal. „Ég mun skoða hann gaumgæfilega og hvað hann þýðir fyrir neytendur og veski þeirra.“

Þá sagði Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, í gær að hann myndi koma í veg fyrir samrunann yrði hann kjörinn forseti og koma slíta Comcast og NBC aftur í sundur.

Hér að neðan má sjá tilkynningu frá Randall Stephenson, framkvæmdastjóra AT&T, vegna kaupanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×