Innlent

Katrín vill formlegar viðræður

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá fundinum í dag.
Frá fundinum í dag. Vísir/Lillý
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segist hafa lagt til á fundinum að flokkarnir fimm myndu hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Að flokkarnir myndu „vinna hratt en samt skilvirkt að því að fá niðurstöðu hvort það sé raunverulega grundvöllur fyrir ríkisstjórnarsamstarfi og þessir hópar myndu þá fara af stað á morgun,“ segir Katrín.

Flokkarnir munu því halda þingflokksfundi í dag til að fara yfir fundina og samþykki þeir það, gætu formlegar stjórnarmyndunarviðræður hafist á morgun.

Katrín mun heyra í forsetanum í dag eða á morgun og kynna honum stöðu mála. Þá segir hún að engin umræða sé hafin um skiptingu á ráðherrastólum.

„Þetta eru fimm ólíkir flokkar. Það er skoðanamunur á milli flokkanna í ýmsum málum. Þannig að ég held að það sé mikilvægt að fá á hreint sem fyrst hvort að við getum fundið sameiginlegar lausnir við þeim málum og ekki fyrr en þá er orðið tímabært að ræða um ráðuneyti eða eitthvað slíkt.“

Hún segir Pírata vera að ræða innan eigin raða hvort það sé rétt að gera þá kröfu á aðra flokka að ráðherrar megi ekki vera þingmenn. Katrín segir að þar verði hver flokkur eða hreyfing að hafa sína stefnu.


Tengdar fréttir

Píratar og Viðreisn lýsa yfir samstarfsvilja

Formenn Pírata og Viðreisnar blása á sögusagnir um lítinn samstarfsvilja sín í milli. Flokkarnir hafa þótt líklegastir til að vera ljón í vegi við myndun fimm flokka ríkisstjórnar undir stjórn Vinstri grænna. Mál skýrast betur um helg

Katrín boðar formenn fjögurra flokka á sinn fund

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna ætlar að funda á morgun með formönnum þeirra fjögurra flokka sem hún reynir að mynda með ríkisstjórn. Hún vonar að það skýrist á fundinum hvort grundvöllur er til formlegra viðræðna við leiðtoga flokkanna.

Katrín fetar í fótspor Steingríms Hermannssonar

Takist Katrínu Jakobsdóttur að mynda fimm flokka ríkisstjórn verður það annað sinn sem slík stjórn hefur verið mynduð frá stofnun lýðveldisins. Sú fyrsta var við völd á árunum 1988 til 1991 undir stjórn Steingríms Hermannssonar þáverandi formanns Framsóknarflokks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×