Sport

Katrín Tanja fékk 38 milljónir króna í verðlaunafé

Katrín Tanja með stóru ávisunina og Sara er henni á vinstri hönd.
Katrín Tanja með stóru ávisunina og Sara er henni á vinstri hönd. mynd/crossfit games
Hraustasta kona heims, Katrín Tanja Davíðsdóttir, nældi sér í góðan pening með sigri sínum á heimsleikunum í Crossfit.

Hún fékk tæpar 37 milljónir fyrir sína frábæru frammistöðu. Hún fékk líka bónus fyrir að vinna eina grein og lenda í öðru sæti í tveimur. Það skilaði henni tæpri milljón í viðbót. Ekki amalegt.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Björgvin Karl Guðmundsson fengu bæði brons og fengu fyrir það rúmar 8 milljónir króna.

Katrín Tanja er annar Íslendingurinn sem fær nafnbótina Hraustasta kona heims en hana hlaut Annie Mist Þórisdóttir árin 2011 og 2012.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×