Sport

Katrín Tanja Davíðsdóttir komin með meira en milljón fylgjendur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir.
Katrín Tanja Davíðsdóttir. Mynd/Instagram/katrintanja
Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur meistari á heimsleikunum í crossfit, náði merkilegum tímamótum í þessari viku því hún er núna komin með yfir eina milljón fylgjendur á Instagram.

Katrín Tanja er kominn í hóp með vinsælustu íþróttakonum heims þegar kemur að aðdáendum á Instagram.

Katrín Tanja hélt upp á tímamótin með því rifja upp það sem hún sagði um kvenleika og íþróttakonur eftir að hún vann heimsleikana í fyrsta sinn árið 2015.

„Þú getur vel verið stelpuleg eða kvenleg ef þú vilt það. Ég tel að fegurð og seigla snúist um það að hafa trú á sjálfri þér og á því hvernig þú vilt koma fram. Það sjálfstraust mun alltaf skína í gegn,“ sagði Katrín Tanja og nú bætti hún aðeins við:

„ ... og góður aukahlutur er að bæta brosinu við líka því það skín alltaf í gegn líka,“ skrifaði Katrín Tanja.



 
.. and accessorize w a smile that also shines through!

A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja) on Aug 15, 2017 at 4:12pm PDT





 

Katrín Tanja er dugleg að nota samfélagsmiðlana og þá sérstaklega Instagram. Margir hafa áhuga að fylgjast með Katrínu Tönju enda frábær íþróttakona með frábært hugarfar.

Hún fékk flott viðbrögð við þessari færslu sinni og margir eru að segja hvað þeir séu ánægðir með að dætur þeirra vilji vera eins og íslenska crossfit-konan.

 Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er komin með 903 þúsund fylgjendur og Anníe Mist Þórisdóttir er með 691 þúsund fylgjendur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×