Innlent

Katrín segir flokkana þurfa að hugsa út fyrir kassann og útilokar ekki minnihlutastjórn

Heimir Már Pétursson skrifar
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir formenn flokkanna þurfa að hugsa út fyrir kassann í þeirri stöðu sem nú er komin upp í stjórnmálum landsins. Hún útilokar ekki að mynduð verði minnihlutastjórn í landinu eftir að hún skilaði umboði sínu til stjórnarmyndunar í dag.

Katrín kom á fund forseta Íslands klukkan tíu í morgun og skilaði skilaði umboði sínu til stjórnarmyndunar eftir að hafa haft það í níu daga. Hún greindi forseta frá því að ekki hefði tekist að mynda þá fimm flokka stjórn sem hún vildi mynda og benti ekki á neinn annan sem taldi að ætti að fá umboð til myndun stjórnar.

Það eru kannski ekki margir möguleikar eftir. Það er auðvitað hægt að mynda sömu þriggja flokka stjórnina og Bjarni Benediktsson reyndi að mynda með Viðreisn og Bjartri framtíð. Hún hefði minnsta mögulega meirihluta á Alþingi.

En Bjarni skilaði sínu umboði eftir að hann taldi að ekki væri næg samstaða um lykilmálefni og að við þær aðstæður væri meirihlutinn of knappur.

Er kannski komið að því sem Píratar ræddu, að mynda minnihlutastjórn sem myndi þá þurfa að semja við aðra flokka um einstök mál eða jafnvel þjóðstjórn?

„Ég held að það sé ekkert útilokað í stöðunni núna. Þótt það sé eðlilegt að fyrst hafi verið reynt að ná  að mynda hér meirihlutastjórnir held ég að þetta sé eitt af því sem flokkarnir  verða að ræða í sínum röðum. Hvað þeir eru tilbúnirn að gera í þessum málum. Ég held að við þurfum að hugsa svolítið út fyrir kassann,“ sagði Katrín.

Vinstri græn hafi lagt áherslu á tiltekin málefni í kosningabaráttunni og viðræðum við aðra flokka að loknum kosningum.

„Og þau munu áfram ráða för í okkar vinnu í þessum málum. En auðvitað þurfum við að fara yfir hvaða málamiðlanir við teljum raunhæft að gera,“ sagði formaður VG.

Þarf þá ekki að semja um færri mál sem skipta þjóðina öllu máli heldur en að búa til mjög ítarlegan stjórnarsáttmála?

„Það kann að vera,“ sagði Katrín Jakobsdóttir.


Tengdar fréttir

„Forsetinn getur ekkert barið þá saman“

Sagnfræðingur telur það klókt af forseta Íslands að veita engum stjórnarmyndunarumboð. Það gæti haft þveröfugáhrif ef hann myndi skipta sér of mikið af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×