Innlent

Katrín segir enga málefnalega samleið milli VG og ríkisstjórnarflokkanna

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Það virðast liltar líkur á að vinstristjórn gangi upp en Katrín segir samstarf VG og Sjálfstæðisflokks ekki líklegt.
Það virðast liltar líkur á að vinstristjórn gangi upp en Katrín segir samstarf VG og Sjálfstæðisflokks ekki líklegt. Vísir/Anton
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir enga málefnalega samleið milli síns flokks og þeirra flokka sem nú sitja í ríkisstjórn, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Katrín var spurð í leiðtogaumræðum á RÚV hvort möguleiki væri í hennar huga að efna til samstarfs með þeim flokkum, fari kosningarnar svo að ekki gangi saman á vinstrivængnum.

„Núverandi stjórnarflokkar hafa rekið mjög harða hægristefnu, allt frá því að þeir tóku við. Það hafa verið lækkaðar álögur á efnamesta fólkið í samfélaginu. Hér var sagt áðan að leiðréttingin hefði skilað sér til tekjulágra hópa. Samkvæmt skýrslu sem fjármálráðherra lagði sjálfur fram skilaði hún sér einmitt til tekjuhærri hópa og eignameiri hópa. Á sama tíma hefur ekki verið unnið í því að byggja upp innviðina,“ sagði Katrín

Margir hafa velt því upp síðustu daga hvort að möguleiki sé á samstarfi milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins. Meðal annars var því haldið fram að Steingrímur J. Sigfússon, fyrrum formaður Vinstri grænna, hefði haldið slíku fram á fundi í Grímsey. Steingrímur þvertók þó fyrir það.

Þá hafa Píratar, Vinstri Græn, Samfylking og Björt framtíð lýst yfir vilja til samstarfs að loknum kosningum, en allt útlit er fyrir að þeir flokkar nái ekki þingmeirihluta.

Engin málefnaleg samleið

„Ég segi það, það hlýtur hver maður að sjá að málefnaleg samleið með okkur í VG, sem viljum hafa réttlátt skattkerfi, þar sem þeir sem eiga mestan auð og mest fjármagn eru skattlagðir hlutfallslega meira en lágtekjufólkið og millitekjufólkið sem heldur hér uppi þessu landi. Það er afar ólíklegt í mínum huga og ég hef ekki séð neina málefnalega samleið með þessu. Við erum að tala fyrir skýrum breytingum, við erum að tala fyrir auknum jöfnuði og jöfnum tækifærum,“ sagði Katrín jafnframt á RÚV í kvöld

Þóra Arnórsdóttir, einn umsjónarmaður þáttarins, ynnti þá Katrínu eftir skýru svari.

„Þetta var algjörlega skýrt svar. Það er engin málefnaleg samleið á milli. Við í VG erum ekki að fara í ríkisstjórn til þess að hafa engin áhrif.“

Vinstri græn mælast með í kringum 17 prósent í öllum nýjustu könnunum.


Tengdar fréttir

Vinstristjórnin virðist ekki í kortunum

Komandi stjórnarmyndunarviðræður gætu orðið þær flóknustu í lýðveldissögunni. Könnun fréttastofu 365 bendir til þess að þeir fjórir flokkar sem lýstu yfir vilja til samstarfs í gær verði að taka annan flokk til viðbótar með í




Fleiri fréttir

Sjá meira


×