Innlent

Katrín ræddi óformlega við forsetann

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, á fundi sínum með flokknum í morgun.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, á fundi sínum með flokknum í morgun. vísir/anton brink
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, ræddi óformlega við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, nú fyrir hádegi. Þetta staðfestir hún í samtali við fréttastofu. Gert er ráð fyrir að hún muni hitta hann í dag, en tímasetning fundarins liggur ekki fyrir.

Katrín fundaði með þingflokki sínum í morgun vegna stöðu mála, en hún sleit stjórnarviðræðum við Samfylkingu, Bjarta Framtíð, Pírata og Viðreisn í gærkvöldi. Hún hefur ekki viljað segja af eða á hvort hún muni reyna stjórnarviðræður áfram eða skila stjórnarmyndunarumboðinu sem forsetinn fól henni.

Flokkarnir funda nú sín á milli eftir niðurstöðu gærdagsins.


Tengdar fréttir

Meirihlutastjórn ekki mynduð án svika

Nokkuð ljóst er orðið að ekki verði mynduð meirihlutastjórn án þess að einhver flokkur gangi þvert á orð sín um að útiloka samstarf við tiltekna flokka.

Stefnir í stjórnarkreppu

Upp úr stjórnarmyndunarviðræðum fimm flokka slitnaði í gær þegar ljóst var að ekki næðist saman um skattabreytingar. Formaður Vinstri grænna ræðir við forseta í dag. Ólíklegt að Björt framtíð slíti samstarfinu við Viðreisn.

Hugmyndir um hærri skatta stóðu í þingmönnum Viðreisnar

Þingmaður Viðreisnar segir að hugmyndir Vinstri grænna um aukna skattheimtu standist ekki hugmyndir helstu skattasérfræðinga landsins. Formaður Vinstri grænna segir að aldrei hafi staðið til að framkvæma allar hugmyndirnar sem lagðar voru




Fleiri fréttir

Sjá meira


×