Fótbolti

Katrín lék allan leikinn í tapi Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Katrín lék allan leikinn fyrir Liverpool í kvöld.
Katrín lék allan leikinn fyrir Liverpool í kvöld. vísir/getty
Katrín Ómarsdóttir lék allan leikinn fyrir Liverpool sem tapaði 1-0 fyrir ítalska liðinu Brescia á útivelli í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Þetta var fyrri leikur liðanna en seinni leikurinn fer fram í Liverpool eftir viku.

Sara Gama skoraði eina mark leiksins á 28. mínútu en Brescia endaði í 2. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í fyrra.

Liverpool hefur gengið heldur illa upp á síðkastið en liðið hefur tapað sex af síðustu sjö leikjum sínum í öllum keppnum.


Tengdar fréttir

Guðbjörg hélt hreinu í sigri Lilleström

Guðbjörg Gunnarsdóttir hélt marki sínu hreinu þegar Lilleström bar 1-0 sigurorð af Zürich í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Rosengård í góðum málum í Meistaradeildinni

Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Rosengård eru í góðri stöðu eftir fyrri leikinn gegn finnska liðinu PK-35 í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×