Fótbolti

Katrín: Enska liðið er ekkert ósvipað því íslenska

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jodie Taylor og Jill Scott fagna marki í sigrinum á Kanada.
Jodie Taylor og Jill Scott fagna marki í sigrinum á Kanada. Vísir/EPA
 Enska landsliðið mætir því japanska í seinni undanúrslitaleiknum á HM í Kanada í kvöld. Enska liðið tapaði fyrsta leik sínum á HM gegn Frakklandi en hefur svo unnið fjóra leiki í röð, alla með markatölunni 2-1, og er komið í undanúrslit í fyrsta sinn.

Katrín Ómarsdóttir hefur leikið með Liverpool í ensku deildinni síðan 2013. Hún segir að áhuginn á enska liðinu hafi aukist mikið í takt við gengi þess.

„Liðið fær mikinn stuðning og það sjá allir hvað þær spila með miklu stolti. Þetta mót gerir mikið fyrir kvennafótboltann á Englandi,“ sagði Katrín en svo virðist sem margir Englendingar séu fyrst núna að átta sig á því að þeir eigi kvennalið.

Katrín segir að væntingarnar til enska liðsins hafi ekki verið miklar fyrir HM, m.a. í ljósi lélegs árangurs á síðasta EM: „Englendingar búast aldrei við neinu af landsliðunum sínum. En ég held að leikmennirnir hafi gert meiri væntingar til sín en almenningur.“

Katrín telur leikstíl enska landsliðsins ekki vera ólíkan leikstíl Íslands. „Þetta er mjög taktískt lið. Þær spila skipulagðan og agaðan varnarleik og nýta sér svo skyndisóknir og föst leikatriði. Svo berjast þær fram á síðustu mínútu og gefast aldrei upp,“ sagði Katrín en enska liðið hefur útfært föstu leikatriðin mjög vel á HM og fengið mikið hrós fyrir.

Japanska liðið, sem er ríkjandi heimsmeistari, er gjörólíkt því enska; spilar skemmtilegan fótbolta og er almennt talið best spilandi liðið í heimsfótboltanum í dag. Þrátt fyrir að andstæðingurinn sé sterkur hefur Katrín trú á því að England geti komist í úrslitaleikinn sem fer fram í Vancouver á sunnudaginn.

„Ég held að þær geti alveg unnið leikinn ef þær halda áfram að spila eins og þær hafa gert; eru agaðar og skipulagðar og nýta sér hæðar- og styrktarmuninn í föstum leikatriðum. Það þarf ekkert að vera að Japan vinni leikinn þrátt fyrir að þær verði með boltann nánast allan tímann,“ sagði Katrín að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×