Innlent

Katrín: „Við ætlum að lyfta gjaldtöku í áföngum“

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Katrín Jakobsdóttir á landsfundi VG í október á síðasta ári.
Katrín Jakobsdóttir á landsfundi VG í október á síðasta ári. Mynd/Sigtryggur Ari Jóhannsson
Vinstri grænir vilja að öll heilbrigðisþjónusta á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum verði gjaldfrjáls og draga þurfi markvisst úr kostnaðarþátttöku sjúklinga á kjörtímabilinu.

Flokksráðsfundur Vinstri grænna stendur nú yfir á Akureyri en í morgun samþykkti fundurinn kosningaáherslur fyrir alþingiskosningarnar. Þar kennir ýmissa grasa. Flokkurinn vill að Íslendingar taki á móti fleiri flóttamönnum, að minnsta kosti 500 á ári eins og þar segir. 

Á meðal þess sem flokkurinn leggur áherslu á er gjaldfrjáls þjónusta á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum og minna vægi kostnaðarþátttöku sjúklinga. 

„Við ætlum að lyfta gjaldtöku í áföngum og við erum með raunhæfa áætlun um hvernig við gerum það. Við viljum byrja á heilsugæslunni og göngudeild sjúkrahúsanna. Við teljum að það þurfi að horfa á rekstur sjúkrahúsanna, heilbrigðisstofnanna úti um land allt og heilsugæslunnar sem þarf að styrkja,“segir Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna í samtali við fréttastofu.

Katrín segist hafa trú á því að heilbrigðismálin verði mest áberandi á þeim vikum sem eru framundan fram að kosningum hinn 29. október.

„Mér finnst að almenningur vilji ræða heilbrigðismálin og það er munur á stefnu flokkanna þó að aðrir flokka vilji bæta stöðu heilbrigðiskerfisins. Það er munur á því hvernig fólk vill gera það, hvernig fólk vill forgangsraða fjármunum. Eitt af því sem við leggjum áherslu á er að forgangsraða í þágu hins opinbera heilbrigðiskerfis. Þess vegna tölum við sérstaklega fyrir einmitt því að það þurfi að styrkja rekstur sjúkrahúsanna, heilbrigðisstofnana og heilsugæslunnar. Það er eitt af því sem ég held að almenningur vilji setja á dagskrá. Þannig að ég hef trú á því að heilbrigðismálin verði ofarlega á baugi.“

Katrín nefnir líka skóla- og menntamál.

„Þar viljum við stórefla bæði háskóla- og framhaldsskólakerfið þannig að við náum þeim markmiðum sem við höfum sett okkur þegar kemur að háskólamenntun því þetta er framtíðar hagsmunamál fyrir okkur öll, að þessi mál séu í lagi.“

Kosningaráherslur VG fyrir alþingiskosningar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×