Glamour

Kate Moss með nýja kærastanum í París

Ritstjórn skrifar
Fyrirsætan Kate Moss er stödd í Parísarborg um þessar mundir, ekki til að horfa á EM, heldur til að vera viðstödd herratískuvikuna sem fer fram í borginni þessa dagana. 

Moss er mætt til leiks með nýja kærastanum sínum, Nikolai Von Bismarrck, ljósmyndari sem er 13 árum yngri en fyrirsætan fræga. Hjónabandi Moss og Jamie Hince lauk í fyrra en það var strax í upphafi þess árs sem sögur fór á kreik um að samband Bismarrck og Moss væri meira en bara vinskapur en Moss hefur lengi verið góð vinkona móður Bismarrck. 

Fyrirsætan er þekkt fyrir fyrirmyndar fatastíl og vakti athygli í munstruðum silki náttfötum, eflaust trend sem við munum sjá fleiri apa upp eftir henni smekklegu Moss á næstunni. 

Á fremsta bekk með David Beckham.





×