Glamour

Kate Moss mætir á Cannes í fyrsta skiptið í 15 ár

Kate Moss var glæsileg á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Kate Moss var glæsileg á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Myndir/Getty
Ofurfyrirsætan Kate Moss gekk rauða dregilinn fyrir frumsýningu myndarinnar "Loving" á kvikmyndahátíðinni í Cannes, Frakklandi. Moss er þekkt fyrir að vera ein best klædda konan hvar sem hún er og kvöldið í kvöld var engin undantekning. 

 

Hún klæddist rauðum Halston kjól sem fór henni einstaklega vel með fallegri hárgreiðslu og förðun í stíl. 

Rauði kjóllinn sem Moss klæddist fór henni einstaklega vel.
Systir Moss, Lottie, var á staðnum ásamt systur sinni. Hún klæddist einnig rauðu eins og Kate en kjóllinn hennar er frá Dior Couture. 

 

Lottie hefur verið að feta í fótspor systur sinnar og er um þessar mundir að stíga sín fyrstu skref í fyrirsætuferlinum 

Lottie var í stíl við systur sína í þessum flotta Dior kjól.
Kate mætti seinast á kvikmyndahátíðina í Suður-Frakklandi árið 2001. Tískan hefur svo sannarlega breyst en á þeim tíma var Kate með stutt hár og þótti heldur lík bresku fyrirsætunni Twiggy sem var vinsæl á sjöunda áratugnum.

Kate á hátíðinni árið 2001. Tískan hefur svo sannarlega breyst.





×