Glamour

Kate Moss dansar í tónlistarmyndbandi fyrir Elvis

Ritstjórn skrifar
Í gær var birt nýtt tónlistarmyndband við lagið The Wonder of You með Elvis Presley. Í aðalhlutverki var ofurfyrirsætan Kate Moss að mæma lagið. Þrátt fyrir að Moss taki sig vel út í myndbandinu í leðursamfesting þá þykir mörgum valið á henni sérkennilegt. Kate er ekki með neina tenginu við Elvis. 

Athugasemdir við myndbandið benda á að það eru fjölmargir aðrir sem hefðu getað leikið í myndbandinu og sem hefðu átt það betur skilið heldur en hún. Þrátt fyrir það er Kate flott og skilar sínu vel frá sér. 






×