Lífið

Kate Middleton klæddi sig upp sem norn á hrekkjavöku

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kate Middleton, sem í dag er hertogaynja, klæddi sig upp sem norn á hrekkjavökunni árið 2007 en tímaritið Us Weekly birtir myndir af því. 

Á þessu tímabili var hún einhleyp en í dag er hún gift Vilhjálmi Bretaprins.

Kate kynntist Vilhjálmi þegar þau voru við nám í St. Andrews-háskóla árið 2001 en þau hættu saman í apríl árið 2007. Eftir nokkra mánuði í sundur byrjuðu þau aftur saman í júlí árið 2007.

Það var svo í október árið 2010 að Vilhjálmur fór á skeljarnar og í apríl árið 2011 gengu þau í það heilaga.

Þau eignuðust soninn George í júlí í fyrra og eiga von á öðru barni í apríl.


Tengdar fréttir

Börn ársins 2013

Fræga fólkið var aldeilis duglegt að fjölga sér á árinu sem er að líða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×