Handbolti

Katar er prúðasta liðið á HM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Katar hefur fengið fæstar tveggja mínútna brottvísanir á mótinu til þessa.
Katar hefur fengið fæstar tveggja mínútna brottvísanir á mótinu til þessa. Vísir/Eva Björk
Katar er prúðasta liðið á HM í handbolta til þessa. Ekkert lið hefur fengið færri brottvísanir á mótinu.

Katar er með samtals 68 refsistig að loknum átta leikjum á mótinu - 8,5 að meðaltali í leik. Liðið hefur fengið alls 23 brottvísanir og 22 gul spjöld - ekkert rautt.

Hér má sjá úttekt á refsingum liðanna á HM í handbolta en Spánn er næst á listanum með 9,9 refsistig að meðaltali í leik.

Samsæriskenningum um að Katar hafi keypt sér hliðholla dómgæslu á mótinu hefur verið haldið á lofti en leikmenn Póllands, sem tapaði fyrir Katar í undanúrslitum mótsins, í gær, voru afar ósáttir eftir leikinn í gær.

Sjá einnig: Búið að ákveða úrslitin fyrir leik

Ísland er á átjánda sæti listans af 24 keppnisþjóðum með 14,7 refsistig að meðaltali í leik. Slóvenía er neðst með 18,1 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×