Innlent

Kata Jak sú eina sem nær að keppa við karlana

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Katrín Jakobsdóttir situr í fjórða sæti á listanum ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Katrín Jakobsdóttir situr í fjórða sæti á listanum ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni.

Af tuttugu algengustu viðmælenda útvarpsþátta á Bylgjunni og Rás 2 eru fimm konur. Af þeim tíu efstu er aðeins Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sem kemst á lista. Þetta kemur fram í samantekt Rósu Guðrúnar Erlingsdóttur, sérfræðings í jafnréttismálum í velferðarráðuneytinu, sem hún kynnti fyrir gestum Jafnréttisþings á Hótel Nordica Hilton í gær.

Credit Info sá um gagnavinnsluna sem náði til morgunþátta Rásar 2, Samfélagsins á Rás 1 og Spegilsins. Könnunin náði einnig til þáttanna Í bítið og Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni. Tímabilið var yfir eitt ár, eða frá september 2014 til september í ár. Var fjöldi viðmælenda talinn og flokkaður eftir kyni. Voru konur 37% viðmælenda í þáttum RÚV en 27% í þáttum 365 miðla.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var oftast allra viðmælandi í fyrrnefndum útvarpsþáttum en 39 sinnum svaraði hann kalli þáttastjórnenda þar af 20 sinnum í Speglinum. Næstur kom Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, sem var 37 sinnum í viðtali. Forsætisráðherra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var 36 sinnum í viðtali og deildu svo þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Katrín Jakobsdóttir fjórða sætinu með 29 skiptum hvort.

Hinar fjórar konurnar sem komust á topp tuttugu listann voru Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra, Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra og Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR. 

Listann í heild má sjá hér til hliðar en hér má sjá glærur úr kynningu Rósu Guðrúnar.

Hlutföllin í fyrrnefndum þáttum í útvarpi og sjónvarpi á RÚV og 365. Smellið á myndina til að stækka.

Hlutfallið 70-30 algengt

Í útvarpsfréttum virðist sem kynjahlutföllin séu verri að morgni en í hádegi. Í áttafréttum Bylgjunnar var hlutfallið 23% konur og 77% karlar en 27% konur og 73% karlar í hádegisfréttum. Mynstrið er svipað hjá RÚV þar sem hlutfallið er 26% konur og 74% karlar að morgni, 27% og 73% í hádeginu og svo 30% og 70% í sexfréttum.

Þegar kemur að kynjahlutföllum í sjónvarpsfréttum á RÚV og Stöð 2 er hlutfallið kunnuglegt, nærri 30% konur og 70% karlar sem er í takti við árin á undan. Í Kastljósi var hlutfallið 36% konur og 64% karlar en jafnast var hlutfallið í Íslandi í dag þar sem konur voru 46% viðmælenda.

Meðal gesta á jafnréttisþinginu í gær voru fjölmiðlakonurnar Eva María Jónsdóttir og Þóra Tómasdóttir. Þær ræddu stöðu mála í Íslandi í dag í gær en viðtalið má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×