Viðskipti erlent

Kassastarfsmenn spiluðu Klukknahljóm í auglýsingu

Atli Ísleifsson skrifar
Auglýsingin hefur vakið athygli í Þýskalandi og víðar.
Auglýsingin hefur vakið athygli í Þýskalandi og víðar.
Þýska verslunarkeðjan Edeka birti nýverið nýja jólaauglýsingu sína þar sem sjá má níu kassastarfsmenn leika Klukknahljóm með hljóðunum sem koma þegar vörur eru skannaðar inn á kassanum.

Auglýsingin hefur vakið mikla athygli í Þýskalandi og víðar og hafa nú rúmlega tvær milljónir manna horft á auglýsinguna á YouTube.

Þrettán földum myndavélum var komið upp í versluninni til að ná myndum af viðbrögðum viðskiptavina sem hrifust allir sem einn með.

Sjá má auglýsinguna að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×