Lífið

Karlotta prinsessa að springa úr krútti á árs afmæli sínu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Breska konungsfjölskyldan hefiur birt myndir  af Karlottu í sínu fínasta pússi.
Breska konungsfjölskyldan hefiur birt myndir af Karlottu í sínu fínasta pússi. Mynd/Hertogaynjan af Cambridge
Karlotta prinsessa, yngra barn, Vilhjálms krónprins af Bretlandi og konu hans Kate fagnar árs afmæli sínu á morgun og í tilefni þess birti konungsfjölskyldan myndir af Karlottu í sínu fínasta pússi.

Samkvæmt upplýsingunum sem fylgja myndunum var það móðir hennar, hertogaynjan af Cambridge, sem tók myndirnar. Virðist hún vera hæfileikaríkur ljósmyndari því myndirnar eru afar skemmtilegar en þær má sjá hér að neðan.

Karlotta fæddist 2. maí fyrir ári síðan en hafa foreldrar gætt vel að því að lítið sjáist til hennar á opinberum vettvangi en almenningur fékk síðast að sjá hana þegar hún var skírð síðastliðið sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×