Erlent

Karlotta litla skírð í gær

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Georg litli var viðstaddur skírn litlu systur.
Georg litli var viðstaddur skírn litlu systur.
Dóttir Vilhjálms prins og Katrínar af Cambridge var skírð til kristni í gær. Litla stúlkan heitir Karlotta Elísabet Díana af Cambridge. Hún er yngra barn þeirra Vilhjálms og Katrínar, en Georg sonur þeirra er tveggja ára.

Skírnarathöfnin tók 45 mínútur, að því er fram kemur í USA Today. Einungis nánum ættingjum og vinum var boðið í athöfnina sem fór fram í Sandringhamkirkjunni í Norfolk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×