Erlent

Karlmenn umskornir og konur seldar á 150 dali

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þúsundir Jasída hafa þurft að flýja heimili sín í kjölfar uppgangs Íslamska ríkisins.
Þúsundir Jasída hafa þurft að flýja heimili sín í kjölfar uppgangs Íslamska ríkisins. VÍSIR/AFP
Fregnir berast nú af því að meðlimir Íslamska ríkisins, sem nú ræður lögum og lofum á stórum hluta svæðisins fyrir botni Miðjarðarhafs, hafi umskorið fjöldann allan af kristnum Assýringum í borginni Mosúl í Írak.

Ekki er getið til um fjölda þeirra sem umskornir voru í umfjöllun dagblaðsins Tunisia Daily en því er haldið fram að um fjöldaumskurn hafi verið ræða.

Mennirnir hafi þá ekki verið deyfðir áður en meðlimir Íslamska ríkisins limlestu þá. Samtökin hafa fyrirskipað að allir kristnir sem eftir eru í Mosul, jafnt börn sem fullorðnir, verði umskorin. Fáir kristnir menn eru nú eftir í borginni eftir að samtökin gáfu þeim þá afarkosti að taka upp íslamska trú, borga skatt, yfirgefa Mosul eða láta lífið.

Umfjöllun túniska dagblaðsins kveður einnig á um að Íslamska ríkið hafi selt 700 jasídískar konur í þrældóm á liðnum vikum á uppboði í Mosúl. Hver og ein seldist á 150 dollara eða um 17.300 krónur.



Kúrdar endurheimta Mósúl-stíflu

Hersveitir Kúrda í Norður-Írak segjast hafa náð Mósúl-stíflunni, stærstu stíflu Íraks, aftur á sitt vald. Sveitir Íslamsks ríkis hertóku stífluna þann 7. ágúst síðastliðinn.

Í gærmorgun hrintu Kúrdar, í samstarfi við lofther Bandaríkjanna, af stað aðgerðum til að hrekja sveitir íslamista frá stíflunni. Að sögn BBC vinna hermenn nú að því að finna og fjarlæga jarðsprengjur og aðrar gildrur sem íslamistar komu fyrir.

Mósúl-stíflan er hernaðarlega mjög mikilvæg, þar sem hún tryggir norðurhluta landsins vatn og rafmagn. Óttuðust margir að Íslamskt ríki myndi nota stífluna til að kaffæra nálæg svæði.


Tengdar fréttir

Hundruðir þúsunda á flótta

Sameinuðu þjóðirnar segja tugþúsundir manna, kvenna og barna enn hafast við, við þröngan kost á Sinjar fjalli og þurfa lífsnauðsylega á aðstoð að halda.

Bretar koma Jasídum til hjálpar

Talið er að allt að 150 þúsund manns séu á svæðinu með litlar sem engar nauðsynlegar birgðir eins og vatn og hlý föt.

Bandarískir hermenn komnir til Íraks

Sérsveitarmennirnir eru lentir í Sindjar-fjöllum þar sem þeim er ætlað að aðstoða Jasaída. Einungis þrjú ár eru síðan bandarískar hersveitir yfirgáfu landið.

35 þúsund flóttamenn hafa komist frá Sinjar-fjalli

Um 35 þúsund flóttamenn hafa nú komist af Sinjar-fjalli þar sem þúsundum flóttamanna hefur verið haldið í herkví af samtökunum IS, Íslamskt ríki. Flóttamennirnir, sem flestir eru Jasídar, hafa farið fótgangandi til Kúrdistan í norðurhluta Íraks í gegnum Sýrland, en ferðin tekur um þrjá daga.

Bretar senda orrustuþotur til Íraks

Tilkynnt var eftir fund í COBR-nefndinni í dag að ákveðið hefði verið að senda nokkrar breskar orrustuþotur af gerðinni Tornado til Íraks til að aðstoða í átökunum við IS-samtökin í landinu. Vélarnar verða notaðar í eftirlitsskyni en þær hafa þó getu til loftárása.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×