Innlent

Karlmaður sendi 15 ára dóttur vinkonu sinnar klámfengin sms

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ríkissaksóknari ákærði manninn einnig fyrir að hafa sent brotaþola fleiri klúr skilaboð en Héraðsdómur Suðurlands vísaði þeim hluta ákærunnar frá.
Ríkissaksóknari ákærði manninn einnig fyrir að hafa sent brotaþola fleiri klúr skilaboð en Héraðsdómur Suðurlands vísaði þeim hluta ákærunnar frá. Vísir/Getty
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að senda 15 ára stúlku smáskilaboð þar sem hann falaðist eftir samræði við hana. Í smáskilaboðunum stóð „Hehe, ok. Langar tig ad rida mer? Tarft ekki ad svara frekar en tu vilt.“

Ríkissaksóknari ákærði manninn einnig fyrir að hafa sent stúlkunni fleiri smáskilaboð og viðhaft í þeim kynferðislegt tal en Héraðsdómur Suðurlands vísaði þeim hluta ákærunnar frá dómi þar sem hann var ekki talinn uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til efnis ákæru. 

Fram kemur í dómnum að maðurinn og stúlkan hafi þekkst í um tíu ár, eða frá því að stúlkan var 5 eða 6 ára gömul. Maðurinn var vinur móður stúlkunnar og hún hafi því treyst honum.

Stúlkan sagði fyrir dómi að þau hafi fyrst talað saman á vinalegum nótum í smáskilaboðum en maðurinn átti frumkvæðið að þeim samskiptum. Síðar hafi hann farið að tala við hana um kynlíf og það hafi henni fundist óþægilegt. Maðurinn hafi meðal annars spurt hvort hún vildi stunda samfarir með honum og sagt henni að hann gæti kennt henni að fá fullnægingu ef hún kæmi í heimsókn til hans.

Maðurinn sagði fyrir dómi kannast við að hluti af samskiptum hans og stúlkunnar hafi verið á kynferðislegum nótum. Hann vissi að stúlkan var 15 ára gömul en minnti að hún hafi haft frumkvæðið að samskiptunum. Þá kvaðst ákærði einnig fyrst hafa haldið að móðir stúlkunnar væri að grínast í honum.

Maðurinn sagðist ekki hafa falast eftir samræði við stúlkuna en þegar smáskilaboðin voru borin undir viðurkenndi hann að hafa sent þau. Hann sagði það hins vegar af og frá að tilgangur hans hafi verið að hafa samræði við stúlkuna. Hann skýrði skilaboðin þannig að um forvitni eða hugsunarleysi af hans hálfu hafi verið að ræða.

Héraðsdómur Suðurlands komst að þeirri niðurstöðu að hæfileg refsing væri tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Refsing var metin hæfileg, meðal annars þegar tekið var tillit til þess hversu lengi málið var til meðferðar í kerfinu. Rannsókn málsins hófst í byrjun árs 2012 en ákæra var ekki gefin út fyrr en 2 árum síðar, þann 6. janúar síðastliðinn.

Ríkissaksóknari kærði frávísun hluta ákærunnar til Hæstaréttar og var dómur í því máli kveðinn upp í dag. Hæstiréttur sneri við dómi Héraðsdóms Suðurlands sem þarf því að taka málið til efnislegrar meðferðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×