Skoðun

Karlar sem hata konur

Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar
Í dag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi hefjum við 16 daga átak sem helgað er baráttunni gegn þessari helstu heilsufarsógn kvenna og útbreiddasta mannréttindabroti í heiminum – ofbeldi af hendi karla. Það er ótrúlegt til þess að hugsa, að þrátt fyrir alla þær framfarir og sigra sem náðst hafa í jafnréttisbaráttu og mannréttindamálum á liðnum árum og áratugum óttist konur þessa heims, fátt meira en feður, syni og bræður þessa heims og því miður ekki að ástæðu lausu.

Á hverju ári eru hundruð þúsunda kvenna myrtar af körlum um allann heim og meirihluti kvenna hefur einhverntíma á æfi sinni orðið fyrir einhverskonar ofbeldi af hálfu karla. Á hverju ári eru hundruð þúsunda kvenna, hnepptar í kynlífsþrældóm, hátt í 200 milljónum kvenna er nauðgað og hundruð milljóna beittar kynferðisofbeldi, um 82 milljónir stúlkna undir 18 ára aldri eru giftar eldri körlum og í Evrópu einni er talið að daglega deyi 7 konur af völdum heimilisofbeldis. Frá lokum heimstyrjaldarinnar síðari hafi karlar myrt fleiri konur en fórnarlömb nazista voru í heimstyrjöldinni síðari.

Samfélagið bregst konum

Jafnvel á Íslandi, þar sem jafnrétti kynjanna er mest í öllum heiminum eru konur ekki öruggar. Ein af hverjum fimm stúlkum hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur og um helmingur íslenskra kvenna hafa einhverntíma á æfinni orðið fyrir ofbeldi af hálfu karla og stór hluti íslenskra kvenna upplifir sig óörugga í miðborg Reykjavíkur.

Samhvæmt nýlegri íslenskri könnun tilkynna konur aðeins um 8% þeirra ofbeldisverka sem þær verða fyrir og lítill hluti þessara tilkynnu brota leiða til sakfellingar í meðferð réttarvörslukerfisins. Það blasir því við að réttarvörslukerfið og í raun, samfélagið allt, hefur brugðist í því hlutverki sínu að tryggja íslenskum konum öruggt umhverfi, til jafns við karla.

Þú getur breytt heiminum

Það hljóta allir að sjá, að slíkt ástand er óásættanlegt í siðuðum samfélögum og það er vissulega umhugsunarefni hvers vegna þúsundir karlar beita konur ofbeldi og hvers vegna við höfum sem samfélag hingað til ekki getað unnið á þessu samfélagsmeini. En það góða er að við getum breytt þessu, þú getur breytt þessu, með því að hætt að taka þátt í þeirri ofbeldis menningu sem við lifum í. Segja frá ofbeldi sem þú veist um og hjálpa brotaþolum, taka ekki þátt í neinu sem niðurlægir konur og andmæla þess háttar ummælum, myndbirtingum, viðburðum og svo framvegis. Það er mikilvægt að við komum þeim skilaboðum til þeirra sem beita ofbeldi að það er ekki samþykkt. Ef þú beitir ofbeldi verður þú að leita þér hjálpar því við getum einfaldlega ekki haldið svona áfram, dætur okkar systur og mæður eiga betra skilið.




Skoðun

Sjá meira


×