Glamour

Karl Lagerfeld og Lily-Rose Depp prýða forsíðu franska Vogue

Ritstjórn skrifar
Foríðufyrirsætur desembertölublaðs franska Vogue eru ekki af verri endanum þetta árið. Þau Karl Lagerfeld og Lily-Rose Depp sitja fyrir saman en myndirnar voru teknar af fatahönnuðinum, fyrrverandi yfirhönnuði Saint Laurent, Hedi Slimane. 

Depp prýðir ekki aðeins þessa Vogue forsíðu, heldur einnig breska Vogue, fyrir þennan mánuð. Hún er einnig andlit Chanel no. 5 ilmvatnsins svo að hún og Karl eru því tilvalið par á forsíðunni. Karl er einnig gestaritstjóri blaðsins að þessu sinni. 






×