Handbolti

Karl Erlingsson ekki hættur | Hótar framkvæmdarstjóra HSÍ

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
vísir/stefán
Handboltaþjálfarinn Karl Erlingsson hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarnar tvær vikur vegna ummæla sinna um fólk innan handboltahreyfingarinnar. Núna hefur hann í hótunum við Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóra HSÍ.

Karl var látinn taka pokann sinn sem aðstoðarþjálfari kvennaliðs Gróttu fyrr í mánuðinum eftir að hann hellti sér yfir dómaraparið Matthías Leifsson og Erni Arnarsson og eftirlitsmanninn Kristján Halldórsson á Facebook. Hann var ennfremur dæmdur í þriggja mánaða bann og gert að greiða 50.000 króna sekt vegna ummæla sinna.

„Gríðarleg framför hjá HSÍ eða hitt þó heldur, dómararuglið heldur áfram. Þvílíkt rugl. Eigum við ekkert betra skilið? Látum það vera að þessir fábjánar hafa aldrei spilað handbolta sjálfir. En óþarfi að setja hálf vangefið lið í búning og láta þá dæma?“

„Skrípaleikur í boði Kristjáns Halldórssonar. Hvað á þetta fífl að fá að ganga langt í að eyðileggja íslenskan handbolta?“ skrifaði Karl á Facebook eftir leik Gróttu og Hauka í Olís-deild kvenna laugardaginn 1. október.

Karli varð einnig uppsigað við Ívar Benediktsson, íþróttafréttamann á Morgunblaðinu, sem skrifaði talsvert um mál hans. Karl var ekki par hrifinn af því og sendi Ívari fjöldamörg skilaboð þar sem hann lét miður falleg orð falla um íþróttafréttamanninn eins og lesa má um hér.

Karl er langt frá því að vera hættur og nú hefur hann beint athygli sinni að Einar Þorvarðarsyni. Ástæðan er bann sem Einar Jónsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar, fékk vegna ummæla sinna í samtali við Vísi á dögunum.

Eins og sjá má hér að neðan vandar Karl Einari ekki kveðjurnar. Hann kveðst vera afar ósáttur við bannið sem Einar Jónsson fékk og segir þetta „toppa alla hneisu sem HSÍ hefur afrekað til þessa og er þó af nógu að taka“ og lætur broskarl fylgja með. Að lokum hótar hann að kæra Einar Þorvarðarson.

Færslu Karls má sjá hér að neðan:

„Afsakið meðan ég hlæ hvaða djók er þetta ? Er einhver mælikvarði í lõgum HSÍ . Hvað óviðeigandi ummæli þýða ???? Eða í hvaða orðarõð þau koma ?

„Einar Þorvarðarson til hamingju með þetta ! Einar greyjið hefur haft Aftureldingu á heilanum í síðan hann var að þjálfa í 5 flokki ef hann tapaði fyrir UMFA var það alltaf einhverjum õðrum að kenna . Gjõrsamlega bilaðist alltaf ef hann tapaði fyrir Aftureldingu . Af hverju veit ég ekki“ .

„Þessi eins leiks dómur er algjõr helvítis brandari ! Það er ekkert til sem gefur þessari nefnd að meta orðalag eða orðarõð ummæla ! Óviðeigandi ummæli eru óviðeigandi ummæli punktur ! Til hamingju með þetta Einar Jónsson ! Þetta toppar alla hneisu sem HSÍ hefur afrekað til þessa og er þó af nógu að taka :)“

„Af hverju fær hann ekki tímabundið bann ? Eruð þið ekki í lagi ? gef mér frest til að skoða með mínum lögmönnum , fyrir hvaða dómstól þú verður dreginn sem forsvarsmaður þessa samtaka“.

vísir/skjáskot

Tengdar fréttir

Karl hættur hjá kvennaliði Gróttu

Karl Erlingsson verður ekki áfram aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Gróttu í kvennahandboltanum en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Handknattleiksdeild Gróttu.

Formaður dómaranefndar: Hegðun Einars alveg út úr kú

Framkvæmdastjóri HSÍ, Einar Þorvarðarson, hefur vísað ummælum Einars Jónssonar, þjálfara Stjörnunnar, á Vísi í gær til aganefndar. Formaður dómaranefndar HSÍ vísar ásökunum þjálfarans til föðurhúsanna.

Einar vill fá afsökunarbeiðni frá dómurunum

"Ég get ekki fengið annað á tilfinninguna en að það sé verið að dæma gegn okkur,“ segir Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, en hann er verulega ósáttur við dómgæsluna í leik sinna manna gegn Aftureldingu um nýliðna helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×