Karl á áttræðisaldri í haldi vegna sprengjumálsins 10. febrúar 2012 18:20
Karlmaður á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild að sprengjumálinu svokallaða, á Hverfisgötu um mánaðarmótin. Maðurinn var handtekinn í dag en lögregla hefur jafnframt lagt hald á ýmsan búnað sem tengist áðurnefndu máli. Á vef lögreglunnar segir að bíll mannsins sé sömuleiðis í vörslu lögreglu en ökutækið er sömu gerðar og lýst var eftir. Tveir aðrir menn voru handteknir í tengslum við málið í dag en þeim hefur nú báðum verið sleppt úr haldi. Fjölmargir hafa verið kallaðir til skýrslutöku undanfarna daga en unnið hefur verið sleitulaust að málinu frá því að það kom upp á þriðjudaginn í síðustu viku enda er það litið mjög alvarlegum augum hjá lögreglu. „Það var þriðjudaginn 31. janúar sem sprengja fannst neðst við Hverfisgötu í Reykjavík. Staðfest er að sprengjan sprakk fyrir klukkan sjö að morgni þennan sama dag, steinsnar frá stjórnarráðinu í Lækjargötu. Engan sakaði og sömuleiðis urðu engar skemmdir. Sprengjan var ekki öflug en hætta var þó á ferðum í nánasta umhverfi þar sem hún sprakk. Loka þurfti af hluta Hverfisgötunnar, eða frá Lækjargötu að Ingólfsstræti, eftir að tilkynning barst um torkennilegan hlut sem síðan reyndist vera leifar af sprengju. Sprengjusveitir lögreglu og Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til og gerðu þær viðeigandi ráðstafanir," segir á vef lögreglunnar.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira