Sport

Kári Steinn setti nýtt Íslandsmet

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kári Steinn setti nýtt Íslandsmet.
Kári Steinn setti nýtt Íslandsmet. vísir/anton
Kári Steinn Karlsson, hlaupari, setti í morgu nýtt Íslandsmet í hálfmaraþoni, en Kári var við keppni í Berlín. Hann átti fyrra metið einnig, en hann setti það í fyrra.

Fyrra met Kára var 1:05,13 en í morgun hljóp hann á 1:04,55. Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari, sagði í samtali við Morgunblaðið sem greindi fyrst frá málinu að markmið Kára hafi verið að hlaupa á undir 65 mínútum.

Hann hljóp einnig síðustu sex kílómetrana á meðaltímanum 3:03 eða 18 mínútum síðustu sex kílómetrana.

Þorbergur Ingi Jónsson, úr UFA, var einnig mættur til leiks að keppa og hljóp hann á 1:07,53. Hann bætti þar sinn besta árangur um fjórar sekúndur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×