Innlent

Kári Stefánsson vill að forsetaembættið verði lagt niður

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Vísir/GVA
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, vill leggja niður forsetaembættið og segir að málskotsréttur forseta trufli þingræði í landinu. Hann er jafnframt ósáttur við að myndskeið þar sem hann tjáir sig á hressilegan hátt hafi verið gert opinbert.

„Ég held að við ættum að leggja niður forsetaembættið. Ég held að það gegni nákvæmlega engum tilgangi,“ sagði Kári sem var gestur í Eyjunni á Stöð 2 fyrr í kvöld. „Við ættum að koma upp barnaheimili á Bessastöðum. Þetta er ágætis hús fyrir það.“

Kári útskýrði mál sitt með tilvísun í það að á Íslandi væri við lýði þingræði sem ekki ætti að hræra í þrátt fyrir að Ólafur Ragnar Grímsson hafi gert vel þegar hann nýtti málskotsrétt sinn til þess að skjóta Icesave-samningunum til þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Þó svo að í þessum tilfellum eins og Icesave-málinu hafi Ólafur Ragnar reynst þessari þjóð vel þá þýðir það ekki endilega að við eigum að leyfa því að trufla þetta þingræði sem við höfum í landinu,“ sagði Kári. „Þetta er svolítið fikt í því og guði sé lof fiktaði hann í því en af og til er hægt að komast að réttri niðurstöðu á röngum forsendum og ég held að hann hafi gert það þar.“

Sjá einnig: Kári: Heiður að fá skvettu úr koppi forsætisráðherra

Kári hefur að undanförnu verið orðaður við framboð til forsetaembættisins en segir að það sé greinilega ekki hollt að gegna embætti forseta Íslands.

„Ég held því fram að það sé bysna óhollt fyrir fólk að verða forseti. Þú sérð bara hvað þetta hefur gert fólki eins og Vigdísi Finnbogadóttur og Ólafi Ragnari Grímssyni. Ekki vildi ég verða eins og þau á á gamals aldri,“ sagði Kári.

Segir birtingu myndskeiðs dónaskap

Kári Stefánsson er ekki sáttur við að myndskeið þar sem hann ræddi nýverið á kraftmikinn hátt á málþingi Pírata um staðsetningu nýs spítala hafi verið gert opinbert á netinu.

„Einn af Pírötunum tekur þetta upp án þes að fá leyfi mitt, setur þetta á netið án þess að fá leyfi mitt. Þetta er dónaskapur,“ sagði Kári.

Sjá einnig: Kári Stefánsson: „Það skiptir engu fokking máli hvar andskotans spítalinn er reistur“

„Þarna er ég að tala fyrir hópi fullorðins fólks. Nú er þetta tekið og sett á netið þar sem þetta er aðgengilegt börnum. Ég nota annað orðalag þegar ég ávarpa börn heldur en fullorðna. Þarna eyðileggur þessi Pírati þau stílbrögð sem ég vil nota þegar ég tjái mig um þetta við fólk. Ég get hinsvegar staðið við innihald þess sem ég talaði um.“

Kári Stefánsson var gestur í Eyjunni en innslagið má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Einnota ríkisstjórn

Það er orðið lýðum ljóst að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs mun ekki sitja lengur en sem nemur kjörtímabilinu. Ástæðan er margþætt og það á við hér eins og segir í Geirmundarsögu Heljarskinns að: "það renna margir orsakalækir að einum ósi örlaga.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×