Innlent

Kári Stefánsson: Líklegra að fólk kjósi Sjálfstæðisflokkinn ef það er ölvað

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Kári er enginn aðdáandi þess að fá áfengi í matvöruverslanir.
Kári er enginn aðdáandi þess að fá áfengi í matvöruverslanir. vísir/vilhelm
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, baunar á Bjarna Benediktsson í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Titill greinarinnar er Hvað meinar maðurinn með frelsi? en þar gerir Kári áfengisfrumvarp Vilhjálms Árnasonar að umtalsefni sínu.

Bjarni Benediktsson flutti ræðu í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra og krafðist hann þar aukins frelsis á Íslandi og sagði það eitt af helstu stefnumálum flokksins. Meðal þeirra hluta sem formaðurinn nefndi þar var áfengi í verslanir.

„Það er ein af grundvallarkenningum markaðsfræðinnar að eftir því sem vöru er komið fyrir á fleiri metrum af hilum í fleiri verslunum þeim mun meira seljist af henni. Þessi kenning segir okkur að ef við tökum það skref að setja áfengi í hillur í venjulegum verslunum selst meira áfengi í landinu,“ ritar Kári en þetta er valkostur sem hann kann illa við.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kári segir skoðun sína á frumvarpinu en það gerði hann einnig fyrr á árinu er hann var gestur Kjartans Atla Kjartanssonar og Þorbjarnar Þórðarsonar í þættinum Hip hop og pólitík. Þá var hann að vísu að ræða um eldri útgáfu frumvarpsins en sú dagaði uppi í þinginu. Endurbætt frumvarp hefur verið lagt fram nú með fleiri meðflutningsmönnum en áður.

Sjá einnig: „Ég hef drukkið mér til ósóma mjög oft“



„Síðan er það allt önnur spurning og gömul hvernig Alþingi treysti fólkinu í landinu til þess að umgangast þessa vöru sem formaðurinn vill nú flytja inn í venjulegar verslanir.“ Kári bendir í næstu línum á að löggjafinn hefur hingað til aldrei treyst fólki sem neytt hefur víns. Því er til að mynda annað að aka bifreið, fljúga flugvél, stýra bátum og vera á almannafæri. Engin önnur löglega seld vara er þeim eiginlegum gædd að löggjafinn skiptir sér af fólki eftir að það hefur neytt hennar.

Kári segir að þessa stundina sé Sjálfstæðisflokkurinn rúinn fylgi og að Bjarni voni að ef áfengi endi í verslunum skili það sér í auknu fylgi flokksins. „Hann veit hins vegar að ef því verður komið í venjulegar verslanir drekka landsmenn meira. Hann veit líka að áfengisdrykkja getur svift menn ráði, rænu og annarri eðlilegri starfsemi heilans og því sé líklegra að menn kjósi Sjálfstæðisflokkinn þegar þeir eru drukknir en allsgáðir,“ skrifar Kári.

„Eina vandamálið sem ég sé við þessa atkvæðasmölun formannsins er að kjörstaðir eru almannafæri,“ skrifar Kári að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×