Skoðun

Kári Stefánsson, gættu þín

Birgir Guðjónsson skrifar
Sæll Kári

Syndaaflausnarsamtal þitt í STUNDINNI, þ. 25 ágúst var fróðlegt. Þú lýsir þar og viðurkennir ýmsa skapgerðarþætti sem mörgum eru löngu ljósir en hefðu ekki þorað að nefna af ótta við málsókn.

Þú hefur fengist við margt og eitthvað tekist, skrifað og skammast og komist upp með ýmislegt. Nú held ég að þú hafir farið langt yfir öll mörk siðleysis.

Jafnvel þótt þú lýsir þér sem skíthæl og óhræsi leyfist þér ekki að að níða konu vegna líkamsvaxtar og andlitslags eða karlmann vegna meintrar samkynhneigðar, eins og þú gerir í Fréttablaðinu 9. september.

Hannah Grey má hafa verið meiri um sig en við tveir til samans og ófríðari en við tveir til samans en á sama tíma miklu gáfaðri en við tveir til samans og verk hennar og orðstír mun varðveitast lengur en okkar beggja til samans.

Hannah Grey fæddist í Þýskalandi 1930. Faðir hennar flúði með fjölskylduna undan ofsóknum nasista og var prófessor í sögu við Yale háskóla í 35 ár. Hannah Grey var í Bryn Mawr College, síðan Fulbright Scholar við Oxford háskóla. Hún útskrifaðist með Ph.D í sagnfræði frá Harvard og var þar assistant professor í nokkur ár. Hún flutti með manni sínum til Chicago, varð þar assistant professor og síðar associate professor við University of Chicago til 1972. Komu þá fram afburða stjórnunarhæfileikar hennar. Hún var skipuð stjórnandi (Dean) College of Arts and Sciences at Northwestern University 1972. Hún varð prófessor í sagnfræði við Yale 1974 og provost sem er næst æðsta staða í háskóla og leysti af sem rektor (president) 1977-78. Henni var veitt prófessors- og rektorsstaða (president) við University of Chicago 1978 og var það til 1993 og þótti afburða stjórnandi. University of Chicago telst meðal bestu háskóla í heiminum.

Hannah Grey var gerð að heiðursdoktor við um 60 háskóla, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur einnig Oxford og sat í stjórn helstu vísinda- og menntastofnana. Hún er löngu viðurkennd sem einhver áhrifamesti háskólaleiðtogi þessa tímabils. Hún hefur hlotið Presidential Medal of Freedom, æðstu orðu Bandaríkjanna og Medal of Liberty sem hefur aðeins verið veitt 12 ríkisborgurum fæddum utan Bandaríkjanna. Þessari einstæðu konu lýsir þú Kári eins og „tveir vörubílstjórar soðnir saman“. Verður kvenfyrirlitning öllu meiri?

Hannah Grey mun örugglega hafa stjórnað af festu og ekki þolað neinn dólgshátt. Varst þú nokkuð ódæll í Chicago?

Edward Heath var ekki einn af farsælustu forsætisráðherrum Bretlands og vissulega alltaf piparsveinn og margoft orðaður við samkynhneigð en það hefur aldrei sannast á hann neitt ósiðlegt. Afstaða þín og aðgerðir við slíku er vel þekkt en það gæti verið óráðlegt að níða hann of mikið til að verða ekki gerður brottrækur úr breskum farartækjum. Mér sýnist vera þörf á ítarlegri syndaaflausn.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðiu.




Skoðun

Sjá meira


×