Körfubolti

Kári semur við Drexel

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kári Jónsson.
Kári Jónsson. vísir/stefán
Kári Jónsson mun leika með körfubolta-háskólanum Drexel næsta haust, en hann samdi við skólann á dögunum. Morgunblaðið greinir frá.

Þessi magnaði drengur fór á kostum í vetur þegar Haukar fóru alla leið í úrslitarimmuna gegn KR. Þar meiddist Kári og Haukar töpuðu einvíginu 3-1.

Kári útskrifaðist frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði í gær og mun því leika með Drexel-skólanum, sem er staðsettur í Philadelphia.

Liðinu gekk ekkert sérstaklega á síðustu leiktíð, en þeir unnu sex leiki og töpuðu 25 leikjum. Þeir voru með 19,4% sigurhlutfall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×