Fótbolti

Kári segist vera í markaformi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason skoraði fyrir Malmö FF.
Landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason skoraði fyrir Malmö FF. Vísir/Getty
Kári Árnason skoraði afar mikilvægt mark þegar Malmö FF vann sigur gegn Norrköping og steig stórt skref í átt að sænska meistaratitlinum í knattspyrnu

Kári var fyrirliði í leiknum í dag í fjarveru Markus Rosenberg sem venjulega ber fyrirliðabandið. Kári átti flottan leik í miðju varnarinnar hjá Malmö og skoraði fyrra mark liðsins í leiknum.

Kári var í viðtali við sænska blaðið Sydsvenskan að leik loknum í dag.

„Já, kannski var það þannig,“ sagði Kári þegar hann var spurður hvort þetta hefði verið klassískur íslenskur vinnusigur.

„Við mættum í leikinn með það hugarfar að þetta væri alþjóðlegur útileikur. Það þýddi að vera ekki mikið með boltann á okkar vallarhelmingi þannig að það voru sendir margir langir boltar upp á framherjann,“ sagði Kári.

Kári mætti aftur til Malmö í vikunni eftir vel heppnað landsleikjahlé þar sem hann skoraði gott skallamark gegn Finnlandi og lagði upp mark fyrir Alfreð Finnbogason í leiknum gegn Tyrkjum. Kári var áfram á skotskónum í dag og auðvitað skoraði hann með skalla eftir hornspyrnu.

„Ég er í markaformi, ég skoraði í landsleiknum líka og var búinn að æfa þetta í vikunni,“ bætti Kári við og þakkaði Viðari Erni Kjartanssyni fyrir hjálpina en Viðar Örn lék með Malmö á fyrri hluta tímabilsins og skoraði fjölmörg mörk.

„Við höfum talað um að sækja í svæðin þar sem færin eru, hann er góður í því, og ég hef fengið ansi mörg færi undanfarið.“

Malmö er í góðri stöðu í sænsku deildinni og hefur sjö stiga forskot þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir.

„Ef við klárum þetta ekki, þá eigum við ekki skilið að vinna gullið,“ sagði Kári að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×