Innlent

Kári sakar alþingismenn um að vera ekki lengur fulltrúar þjóðarinnar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Kári Stefánsson.
Kári Stefánsson. Vísir/Vilhelm
Kári Stefánsson gagnrýnir alla stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi harðlega fyrir að fjársvelta heilbrigðiskerfið, í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

Þar spyr hann hvort þingið ætli að reka rýting í bak þjóðarinnar, en í greininni lýsir hann reynslu fjölskyldu sinnar af kerfinu.

Kári lýsir því hvernig hann fékk símtal um miðja nótt þar sem honum var tilkynnt að fárveik systir hans sem lá inn á gjörgæslu á Hringbraut yrði flutt yfir á gjörgæsluna á Fossvogi vegna þess að ekki væri nægur mannskapur á Hringbraut til þess að sinna henni.

Læknir á deildinni hefði tjáð Kára að það þyrfti þrátt fyrir að það fæli í sér gríðarlega áhættu fyrir sjúklinginn einfaldlega vegna þess að ekki væri annað hægt vegna ástandsins á spítalanum.

Kári telur að samþykki Alþingi núverandi fjárlagafrumvarp óbreytt reki það rýting í bak þjóðarinnar. Hann segir það ótrúlegt að sá möguleiki sé fyrir hendi örfáum vikum eftir kosningar þar sem allir flokkar hafi lofað endurreisn heilbrigðiskerfisins.

Hann gagnrýnir Ásmund Friðriksson alþingismann Sjálfstæðisflokksins harðlega fyrir að efast um sannleiksgildi nýlegra mynda frá landsspítalanum sem sýna plássleysi sjúklinga og líkir veru þingmannsins á Alþingi við veru kanarífugls í námugöngum.

Kári segir að svo virðist vera sem þorri þingmanna sem áður voru á því að endurreisa þyrfti heilbrigðiskerfið sé nú kominn á þá skoðun að þjóðin sé að ýkja vandann.

Að lokum spyr Kári hvað þjóðin eigi að gera við þá sem virðast ekki lengur vera fulltrúar þjóðarinnar.


Tengdar fréttir

Rýtingur Þingsins í bak þjóðar?

Þegar ég var kandídat á taugalækningadeild Landspítalans var kústaskápur á ganginum sem tengdi A- og B-ganga lyflækningadeildar við hvelfingu þar sem voru fjórar dyr, einar þeirra veittu aðgang að taugalækningadeildinni þar sem ég vann. Auk kústa hýsti skápurinn fötur og tuskur og einhvers konar sápubrúsa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×