Enski boltinn

Kári fékk stig í fallbaráttunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Kári Árnason spilaði allan leikinn er Rotherham gerði 1-1 jafntefli gegn Fulham í ensku B-deildinni í kvöld.

Rotherham er í 21. sæti deildarinnar og hefur unnið aðeins einn af síðustu sjö leikjum sínum. Liðið er þó fimm stigum frá fallsæti þegar lítið er eftir af tímabilinu.

Blackpool er þegar fallið úr deildinni og Wigan á afar veika von um að bjarga sér. Millwall, sem á fjóra leiki eftir, er fimm stigum á eftir Rotherham sem á þrjá leiki eftir.

Matt Derbyshire kom Rotherham yfir strax á fjórðu mínútu en Ross McCormack jafnaði metin fyrir Fulham á 67. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×