Handbolti

Kári beindi "byssu“ að sínum gamla samherja og fékk rautt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kári fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks.
Kári fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks. vísir/vilhelm
Haukar eru komnir í 2-0 í einvíginu við ÍBV í undanúrslitum Olís-deildar karla eftir 33-34 sigur í öðrum leik liðanna í Eyjum í kvöld.

Leikurinn var mögnuð skemmtun en tvær framlengingar þurfti til að knýja fram úrslit.

Tvö rauð spjöld fóru á loft í leiknum, bæði á Eyjamenn. Varnarjaxlinn Sindri Haraldsson fékk sína þriðju brottvísun í annarri framlengingunni og í fyrri hálfleik fékk Kári Kristján Kristjánsson beint rautt fyrir viðskipti sín við Hákon Daða Styrmisson.

Þegar fjórar mínútur voru til hálfleiks, í stöðunni 7-10 fyrir Hauka, braut Hákon á Kára og víti var dæmt, eða eins og segir í umfjöllun blaðamanns Vísis um leikinn:

„Hákon Daði braut á Kára en þá var dæmt vítakast, Kári virtist þá fara viljandi með hendurnar í hausinn á Hákoni Daða og héldu margir að hann fengi rautt spjald. Dómararnir komust að þeirri niðurstöðu að Hákon fengi tveggja mínútna brottvísun fyrir brotið og Kári fyrir viðbrögð sín.

„Þegar þeir voru að labba af vellinum ætlaði Hákon Daði að taka í spaðann á Kára sem virðist hafa misst stjórn á sér í nokkrar sekúndur. Hann myndaði byssu með hendinni og færði hana í áttina að hausnum á Hákoni. Dómarar leiksins voru ekki lengi að sýna Kára rauða spjaldið sem verður að vera ósáttur við sjálfan sig að láta táning leiða sig í svona gildru.“

Á Facebook-síðu handknattleiksdeildar Hauka má sjá myndasyrpu af þessu atviki en þar sést Kári beina „byssunni“ að höfði Hákons.

Hornamaðurinn ungi átti frábæran leik í kvöld og skoraði 12 mörk en hann gekk til liðs við Hauka frá ÍBV fyrr í vetur.

Hákon hefur reynst sínum gömlu félögum afar erfiður í einvíginu en hann skoraði 10 mörk í fyrsta leiknum á Ásvöllum og hefur því skorað samtals 22 mörk í leikjunum tveimur.

Myndir af atvikinu má sjá á Facebook-síðu Hauka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×