Fótbolti

Kári Árnason sænskur meistari með Malmö

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kári Árnason verður í Meistaradeildinni með Malmö á næstu leiktíð.
Kári Árnason verður í Meistaradeildinni með Malmö á næstu leiktíð. vísir/getty
Kári Árnason og félagar hans í Malmö urðu í kvöld sænskir meistarar í fótbolta. Malmö vann öruggan 3-0 sigur á Falkenberg á útivelli á sama tíma og Jóni Guðni Fjóluson og félagar hans í IFK Norrköping töpuðu fyrir Elfsborg, 2-1, á útivelli.

Jón Guðni fékk beint rautt spjald í tapinu á 90. mínútu en liðið hleypti lífi í titilbaráttuna í síðustu umferð þegar það vann en Malmö tapaði.

Malmö er nú með sjö stiga forskot á toppnum þegar aðeins sex stig eru eftir í pottinum í þeim tveimur umferðum sem eru eftir og er því orðið meistari í 22. sinn í sögunni.

Þetta er fjórði Svíþjóðarmeistaratitill Malmö frá árinu 2010 en það er búið að festa sér sess sem stærsta liðið í Svíþjóð. Það missti af titlinum í fyrra til Norrköping sem þarf nú að láta hann af hendi.

Kári Árnason kom til Malmö í fyrra og spilaði alla leiktíðina í hjarta varnarinnar hjá meistaraliðinu. Viðar Örn Kjartansson spilaði hálfa leiktíðina áður en hann var seldur til Ísrael. Viðar er engu að síður enn þá markahæstur í sænsku úrvalsdeildinni með fjórtán mörk.

Þetta er í annað sinn sem Kári verður meistari í Svíþjóð en hann fagnaði sigri í sænsku úrvalsdeildinni fyrir ellefu árum síðan þegar hann var leikmaður Djurgården. Hann varð tvöfaldur meistari 2005 en Malmö komst í úrslitaleik bikarsins í byrjun tímabilsins en tapaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×