Handbolti

Kári: Er bara verktaki með 150 þúsund á mánuði

Elvar Geir Magnússon í Mýrinni skrifar
Kári í þungum þönkum á hliðarlínunni í kvöld.
Kári í þungum þönkum á hliðarlínunni í kvöld. vísir/eyþór
Þjálfari Gróttu, Kári Garðarsson, viðurkenndi að það hafi verið furðulegt að undirbúa leikinn gegn Stjörnunni í ljósi atburða síðustu daga.

Sem kunnugt er var Gróttu dæmdur sigur í öðrum leik liðanna vegna þess að Stjarnan notaði leikmann sem var ekki á skýrslu.

„Þegar úrskurðurinn kom fór ýmislegt í gang. Það er sérstakur dagur að baki en maður reyndi eins og maður gat að svara ekki alveg öllum símtölum, frá 365 og fleiri aðilum. Maður reyndi að halda fókus á leikinn. Ég neita því ekki að þetta var sérstakt,“ segir Kári.

Telur hann að þetta mál hafi haft áhrif á spilamennsku liðanna í kvöld?

„Ég held að það hafi klárlega haft áhrif á umgjörð leiksins. Það var mun meira fjallað um leikinn og mætingin mun betri. Umræðan var kannski á neikvæðu rófi. Það getur vel verið að þetta hafi haft einhver áhrif. Það verða sérfróðir menn að finna út.“

Var Kári sjálfur hlynntur því að þessi kæra yrði lögð fram?

„Ég kom ekki að því máli. Ég lét bara stjórnina alfarið um það og sagði ekki mína skoðun á því. Hvort þetta yrði af eða á.“

En er það ekki óeðlilegt að hann fái ekkert að segja um þetta?

„Nei ég er bara verktaki sem fæ 150 þúsund krónur á mánuði fyrir að þjálfa handbolta. Þetta er ekkert sem ég velti mikið fyrir mér enda vildi ég ekkert blanda mér í þetta. Ég vildi bara að stjórnin myndi taka þá ákvörðun sem hún teldi best að taka,“ segir Kári sem tekur undir það að hann vilji auðvitað að úrslitin ráðist helst á vellinum sjálfum.

„Þetta er leiðindamál og mjög óheppilegt. Þetta er ekki að gerast á hverjum degi en reglur eru víst reglur og það verður að fara eftir þeim.“

Kári segir að Grótta hafi spilað arfaslakan sóknarleik í kvöld og það hafi farið með leikinn.

„Sóknarleikurinn var lélegur nánast allan tímann og við náðum ekki upp neinu floti. Næsta verkefni er á fimmtudaginn og við verðum að núllstilla okkur og skilja við þessi leiðindi sem eru að baki. Við reynum að læra af þessum leik og komast í úrslitaeinvígið,“ segir Kári Garðarsson.


Tengdar fréttir

Grótta komin í 1-0 eftir vítakastkeppni

Íslandsmeistarar Gróttu eru komnir í 1-0 í einvíginu gegn Stjörnunni eftir dramatískan sigur eftir vítakastkeppni, 33-35, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í kvöld.

Formaður hkd. Gróttu: Stöndum og föllum með þessari ákvörðun

"Það var í rauninni aldrei spurning um hvort ætti að senda tilkynningu til mótanefndar HSÍ,“ segir Kristín Þórðardóttir, formaður handknattleiksdeildar Gróttu, en Grótta tilkynnti ólöglegan leikmann Stjörnunnar til HSÍ og hefur verið nokkuð gagnrýnd fyrir það.

Stjarnan ósátt við Gróttu og mótanefnd HSÍ

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna úrskurðar mótanefndar HSÍ sem dæmdi Gróttu sigur á Stjörnunni í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna. Ástæðan fyrir því var að Stjarnan notaði leikmann sem var ekki skráður á skýrslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×