Handbolti

Karen og Arna Sif náðu í stig í Toulon

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Karen Knútsdóttir
Karen Knútsdóttir vísir/getty
Nice OGC náði jafntefli við Toulon St-CYR á útivelli í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld á útivelli.

Karen Knútsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Nice og Arna Sif Pálsdóttir eitt.

Toulon var 13-9 yfir í hálfleik en Nice var hársbreidd frá því að tryggja sér sigur í lokin. Nice skoraði mörk í röð og komst í 20-19 en Toulon tryggði sér stigið úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×