Handbolti

Karen næst markahæst í stórsigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Karen skoraði sex mörk.
Karen skoraði sex mörk. Vísir/STEFÁN
Karen Knútsdóttir var næst markahæst hjá franska liðinu Nice í öruggum sigri á Mios Biganos-Bègles í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi. Þrettán marka sigur Nice urðu lokatölur, 35-22.

Staðan var 13-10 Nice í vil í hálfleik, en í síðari hálfleik léku heimakonur á alls oddi og unnu að lokum þrettán marka sigur eins og fyrr segir, 35-22.

Karen skoraði sex mörk, en Alexandra Lacrabere var markahæst með átta mörk hjá Nice.

Nice er í fimmta sæti deildarinnar með 29 stig, en Biganos-Bègles er í því tíunda með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×