Handbolti

Karen með tvö mörk í stórtapi Nice

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nice er í 7. sæti frönsku deildarinnar.
Nice er í 7. sæti frönsku deildarinnar. mynd/facebook-síða nice
Karen Knútsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Nice sem tapaði með níu marka mun, 19-28, fyrir Nimes í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Nice er í 7. sæti deildarinnar en liðið hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum.

Leikurinn var jafn framan af en þegar sjö mínútur voru eftir af fyrri hálfleik jafnaði Karen metin í 8-8.

Nimes átti hins vegar öflugan endasprett og skoraði fjögur af síðustu fimm mörkum fyrri hálfleiks og leiddi með þremur mörkum, 9-12, í hléi.

Nimes hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik og vann að lokum níu marka sigur, 19-28.

Arna Sif Pálsdóttir komst ekki á blað í liði Nice en hún kom til félagsins í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×